Aukin lífsgæði og betri líðan með styttri vinnuviku

Þátttakendur í tilraunaverkefni ríkisins um styttingu vinnuvikunnar gátu eytt meiri tíma með fjölskyldu og vinum.

Þátttakendur í tilraunaverkefni ríkisins um styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar upplifðu aukin lífsgæði og leið betur bæði í vinnunni og heima fyrir eftir tólf mánuði af styttingu vinnuvikunnar. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar sem unnin var í tengslum við tilraunaverkefnið.

Niðurstöðurnar passa vel við aðrar niðurstöður úr þessu og öðrum tilraunaverkefnum um styttingu vinnuvikunnar. Þær byggja á eigindlegri rannsókn þar sem gögnum var safnað með rýnihópum og viðtölum á vinnustöðum sem tóku þátt í tilraunaverkefninu.

Í skýrslu þar sem niðurstöðurnar eru teknar saman er einnig vitnað í stjórnendur á þeim vinnustöðum sem tóku þátt í tilraunaverkefninu. Að þeirra mati vann starfsfólkið hraðar, lagði meira af mörkum og tók styttri pásur eftir að vinnuvikan var stytt. Þá var það upplifun stjórnenda að meira væri um samstarf og samhjálp á vinnustöðunum.

Tíminn eftir vinnu nýttist starfsfólkinu betur til að sinna fjölskyldum, vinum og tómstundum. Sérstaklega var mikil ánægja með tilraunaverkefnið hjá þeim sem hættu snemma á föstudögum og fannst þeim muna mikið um að lengja helgarfríið á þennan hátt.

Þegar makar starfsmannanna voru spurðir um áhrifin sögðu þeir að styttingin hafi létt álagi af fjölskyldum þeirra, sér í lagi þar sem ung börn voru á heimilinu. Upplifun makanna var almennt sú að dregið hafi úr streitu á morgnana og seinnipartinn og makinn væri ekki eins þreyttur eftir vinnudaginn.

Mikil áhrif hjá vaktavinnufólki

Áhrifin af styttingu vinnuvikunnar voru sérstaklega mikil hjá vaktavinnufólki, sem upplifði fleiri samvinnustundir með fjölskyldu eftir að vinnuvika þeirra styttist.

Upplifun stjórnenda af eigin styttingu var sú að sumir þeirra töldu sig eiga erfiðara með að stytta vinnutímann samanborið við almenna starfsmenn eftir að tilraunaverkefnið hafði verið í gangi í sex mánuði. Eftir tólf mánuði var orðið algengara að þeir styttu vinnutímann.

Nánar er fjallað um niðurstöður rannsóknarinnar á vef Félagsmálaráðuneytisins. Þeir sem vilja kynna sér málið betur geta lesið nánar um niðurstöðurnar í skýrslunni Tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma hjá ríkinu.

Stytting vinnuvikunnar stóra málið í kjarasamningsviðræðum

BSRB hefur lagt áherslu á styttingu vinnuvikunnar í viðræðum um nýjan kjarasamning við ríki og sveitarfélög sem nú eru í gangi. Bandalagið krefst 35 stunda vinnuviku og meiri styttingar fyrir vaktavinnufólk í viðræðunum.

Hægt er að kynna sér allt um styttingu vinnuvikunnar og tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar og ríkisins hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?