Félagar í SDS samþykkja sameiningu við Kjöl

Fráfarandi stjórn SDS (frá vinstri): Helga, Lilja, Kristjana og Guðrún Birna. Á myndina vantar Kristínu, Aðalstein og Jófríði.

Félagar í Starfsmannafélagi Dala- og Snæfellssýslu (SDS) samþykktu sameiningu félagsins við Kjöl stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum og tekur þegar gildi, en bókhaldsleg sameining verður um áramótin.

Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu er eitt af stærstu aðildarfélögum BSRB. Félagið er deildaskipt og í kjölfar sameiningarinnar verður stofnuð SDS deild innan Kjalar. Aðrar deildir félagsins eru á Dalvík, Siglufirði, Akureyri, í Skagafirði, Húnavatnssýslum og Borgarfirði. Við sameininguna tekur Helga Hafsteinsdóttir, fráfarandi formaður SDS, sæti í stjórn Kjalar en SDS-deild er tryggt sæti á lista til stjórnar Kjalar stéttarfélags samkvæmt lögum félagsins.

Félagsaldur félagsmanna SDS flyst að fullu til sjóða Kjalar stéttarfélags, orlofssjóðs og starfsmenntasjóðs. Til næstu áramóta verður afgreiðsla styrkja starfsmenntasjóðs og afgreiðsla orlofshúsa SDS með óbreyttu sniði.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?