Félagar á landsbyggðinni sæki um hjá Bjargi

Teknar hafa verið fyrstu skóflustungur að íbúðakjörnum Bjargs íbúðafélags á tveimur lóðum í Reykjavík, en uppbygging er einnig fyrirhuguð á landsbyggðinni.

Félagsmenn í aðildarfélögum BSRB og ASÍ hafa tekið vel við sér og fjölmargar umsóknir hafa borist Bjargi íbúðafélagi. Rétt er að minna sérstaklega þá sem búa á landsbyggðinni á möguleikann á að sækja um.

Bjarg íbúðafélag, sem stofnað var af ASÍ og BSRB, hefur það að markmiði að byggja upp og leigja tekjulágum félögum þessara tveggja heildarsamtaka íbúðir. Félagið er ekki rekið í hagnaðarskyni.

Skráning á biðlista stendur nú yfir. Öllum umsóknum sem berast fyrir lok júlí verður safnað saman og verður dregið úr umsóknunum um sæti á biðlistanum í byrjun ágúst. Þeir sem sækja um eftir lok júlí fara svo á biðlistann í þeirri röð sem umsóknir berast.

Eins og fram hefur komið hefur Bjarg íbúðafélag nú hafið framkvæmdir á tveimur lóðum í Reykjavík, en uppbygging er fyrirhuguð víðar. Nú þegar hefur félagið undirritað viljayfirlýsingar um uppbyggingu á Akureyri, Akranesi, Selfossi, Þorlákshöfn og í Sandgerði. Íbúar í þessum sveitarfélögum sem hafa áhuga á að sækja um íbúð eru hvattir til að sækja um sem fyrst svo þeir verði framarlega í röðinni þegar íbúðir verða teknar í notkun í þeirra bæjarfélögum.

Flestar umsóknir frá höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt samantekt frá Bjargi, sem kynnt var á fundi stjórnar BSRB síðastliðinn föstudag, hafa á fimmta hundrað umsóknir þegar borist félaginu. Mikill meirihluti umsókna, nærri níu af hverjum tíu, eru frá fólki sem nú býr á höfuðborgarsvæðinu.

Þeir félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem hafa hug á að sækja um íbúð hjá Bjargi eru hvattir til að nota sér reiknivél á vef Bjargs og að skila inn umsókn fyrir lok júlí til að eiga sem mestan möguleika á að fá úthlutað íbúð sem fyrst.

Prófaðu reiknivélina og sendu inn umsókn á vef Bjargs íbúðafélags.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?