Fjórðungur launafólks á erfitt með að ná endum saman

Stór hluti starfa tengdum ferðamannaiðnaðinum þurrkaðist út í heimsfaraldrinum.

Um fjórðungur launafólks á erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri könnun Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Erfiðleikarnir eru mestir hjá atvinnulausum og innflytjendum, eins og fram kom á veffundi nú í hádeginu þar sem niðurstöðurnar voru kynntar.

Varða lagði nýverið könnun fyrir félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands og BSRB þar sem spurt var um stöðu launafólks og atvinnulausra. Ákveðið var að ráðast í gerð könnunarinnar meðal annars vegna þeirra miklu erfiðleika sem hluti launafólks býr við vegna heimsfaraldur kórónuveirunnar, sérstaklega sá stóri hópur sem misst hefur vinnuna.

Niðurstöðurnar sýna verulegan mun á fjárhagsstöðu félagsfólks aðildarfélaga ASÍ og BSRB eftir kyni. Alls sögðust 23,7 prósent þeirra sem tóku þátt í könnuninni að þeir ættu frekar erfitt eða erfitt með að láta enda ná saman. Hlutfallið var mun hærra meðal kvenna, 27,2 prósent en hjá körlum mældist það um 19,5 prósent.

Staða atvinnulausra var mun verri en staða launafólks. Rúmlega helmingur atvinnulausra, 50,5 prósent, sögðust eiga frekar erfitt eða erfitt með að láta enda ná saman. Atvinnulausir eru líka mun líklegri til að þurfa að leita til sveitarfélaga eða vina og ættingja eftir fjárhagsaðstoð, þiggja aðstoð hjálparsamtaka eða fá mataraðstoð.

Erfiðleikarnir miklir meðal innflytjenda

Atvinnuleysi er mun hærra meðal innflytjenda en innfæddra, um 24 prósent samanborið við 15,2 prósent samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar sem vitnað er til í skýrslu Vörðu og því ljóst að um viðkvæman hóp er að ræða. Alls sögðust um 34,9 prósent innflytjenda eiga erfitt eða frekar erfitt með að láta enda ná saman. Það er mun hærra hlutfall en meðal innfæddra, þar sem 26,2 prósent voru í sömu stöðu. Innflytjendur líða frekar efnahagslegan skort og hafa í meira mæli þurft að þiggja matar- og/eða fjárhagsaðstoð.

Í könnun Vörðu var einnig spurt um andlega og líkamlega heilsu. Niðurstöðurnar sýna að andleg og líkamleg heilsa atvinnulausra er verri en þeirra sem eru í vinnu og þeir eru líklegri til að hafa neitað sér um að sækja heilbrigðisþjónustu. Andleg heilsa atvinnulausra mælist einnig mun verri hjá konum en körlum en athygli verkur að um fjórðungur kvenna á vinnumarkaði, þeirra sem eru í vinnu, sagðist búa við slæma andlega heilsu.

Þrír hópar skera sig úr

„Það sem er alveg skýrt fyrir mér út frá þessari könnun er að það skiptir ekki máli hvort fólk er í vinnu eða atvinnuleit, það eru alltaf þrír hópar sem skera sig úr; það eru innflytjendur, unga fólkið og konur,“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir á kynningarfundinum. Hún sagði verkalýðshreyfinguna hafa lagt þunga áherslu á að hækka lægstu launin á undanförnum árum. Það hafi þó greinilega ekki náð tilætluðum árangri þegar fjórðungur félagsmanna BSRB og ASÍ eigi erfitt með að láta enda ná saman.

Hægt er að kynna sér niðurstöður könnunar Vörðu í heild sinni í meðfylgjandi skýrslu.

Staða launafólks á Íslandi 2021


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?