Fleiri BSRB félög hefja atkvæðagreiðslu um verkföll

Á hádegi í dag, 28. apríl, hefjast atkvæðagreiðslur um verkfallsaðgerðir BSRB félaga í Hafnafirði, Reykjanesbæ, Ölfus, Árborg, Hveragerði og Vestmannaeyjum, vegna kjaradeilu aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Kosningu lýkur á hádegi á fimmtudag 4. maí og verða niðurstöður kynntar í kjölfarið.

Atkvæðagreiðslur um verkfallsaðgerðir standa þegar yfir í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi en þeim lýkur á hádegi á morgun, laugardag. Niðurstöður verða kynntar stuttu síðar.

„Atkvæðagreiðslur fóru vel af stað í Kópavogi, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnesi og augljóst að það er mikill hugur í okkar fólki. Ég hvet allt kosningabært félagsfólk til að taka þátt í kosningunni og sýna samstöðu í verki,“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um atkvæðagreiðslurnar.

Verði verkfallsboðun samþykkt mun starfsfólk leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, mötuneyta og hafna leggja niður störf í 10 sveitarfélögum, en misjafnt er eftir sveitarfélögum hvaða stofnanir eru undir.

Um hvað snýst málið?
Kjaradeilan snýr að sameiginlegri kröfu BSRB félaga um að starfsfólk sveitarfélaga, sem vinna m.a. á leikskólum, grunnskólum, sundlaugum, íþróttamiðstöðvum og þjónustu við fatlað fólk fái sömu laun fyrir sömu eða sambærileg störf innan sömu stofnunar eða sveitarfélags og aðrir hafa þegar fengið frá 1. janúar. Þar sem Samband íslenskra sveitarfélaga neitar að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks, og fundir með ríkissáttasemjara hafa engu skilað, greiðir félagsfólk um þessar mundir atkvæði um verkfallsaðgerðir svo knýja megi viðsemjendur okkar til samninga.

Hvaða starfsfólk kemur til með að leggja niður störf?
Um 1500 félagsmenn 10 aðildarfélaga BSRB í leik- og grunnskólum, frístundarmiðstöðvum, skólaeldhúsum og höfnum koma til með að leggja niður störf:

Kópavogur: Leik- og grunnskólar
Mosfellsbær: Leik- og grunnskólar og frístundarmiðstöðvar
Garðabær: Leikskólar
Seltjarnarnes: Grunnskólar
Hafnafjörður: Grunnskólar og frístundamiðstöðvar
Reykjanesbær: Grunnskólar
Ölfus: Grunnskólar, skólaeldhús og Þorlákshöfn
Hveragerði: Leikskólar
Árborg: Leikskólar
Vestmannaeyjar: Leikskólar og Vestmannaeyjarhöfn

Hvenær verða verkföllin?
Verði verkfallsboðanir samþykktar mun starfsfólk Kópavogs, Mosfellsbæjar, Garðabæjar og Seltjarnarness hefja verkföll 15. og 16. maí. Starfsfólk Hafnafjarðar, Ölfus, Reykjanesbæjar, Árborgar, Hveragerðis og Vestmanneyja mun bætast í hópinn í vikunni á eftir og eru verkföll fyrirhuguð 22., 23., 24. 25. og 26. maí, 5,. 6., 7., 8., og 9. júní. Náist ekki að semja fyrir þann tíma er gert ráð fyrir stigmagnandi aðgerðum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?