Formannaráð BSRB mótmælir aðhaldskröfu

Formannaráð kallar eftir álagsgreiðslum og stuðningi fyrir framlínustarfsfólk.

Formannaráð BSRB mótmælir harðlega aðhaldskröfu í rekstri heilbrigðisþjónustu í heimsfaraldri kórónuveirunnar og kjölfar hans, eins og fram kemur í ályktun sem ráðið samþykkti á fundi sínum í morgun.

Í ályktuninni er kallað eftir því að fjármagni verði veitt í heilbrigðiskerfið í samræmi við þörf og að Landspítalanum verði bætt upp áralangt fjársvelti. Bent er á það í ályktun ráðsins að með lækkun tryggingargjalds á næsta ári verði ríkið af um fjórum milljörðum króna, sem sé sambærileg fjárhæð og sá halli sem Landspítalinn glími nú við.

„Útgjöld til heilbrigðismála voru hlutfallslega lægri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum áður en faraldurinn skall á. Undirfjármögnun heilbrigðiskerfisins er því gamalkunnur vandi sem þarf að vinda ofan af. Heimsfaraldurinn hefur aukið skilning á mikilvægi grunnstoða samfélagsins og augljóst að fjárfesting í heilbrigðisþjónustu og öðrum grunninnviðum er gríðarlega mikilvæg fyrir allt samfélagið,“ segir í ályktuninni.

Þar segir að það sé löngu tímabært að bæta starfsumhverfi starfsfólks almannaþjónustunnar, sem unnið hefur þrekvirki í því að koma landsmönnum í gegnum faraldurinn. „Í stað þess að leita leiða til að létta álagi af starfsfólki í framlínu baráttunnar gegn faraldrinum er nú kallað eftir aðhaldi í rekstri og niðurskurði. Verði ekki horfið frá þessari stefnu geta afleiðingarnar fyrir heilsu starfsfólksins verið alvarlegar,“ segir í ályktuninni.

„Formannaráðið kallar eftir því að starfsfólk í framlínu fái álagsgreiðslur í samræmi við þá áhættu sem það hefur tekið og þau þrekvirki sem það hefur unnið í baráttu við veiruna. Þá þarf að tryggja framlínufólki allan þann stuðning sem nauðsynlegur er til að takast á við líkamlegt og andlegt álag vegna þeirra starfa í baráttunni gegn heimsfaraldrinum,“ segir þar ennfremur.

Ályktunina í heild sinni má lesa hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?