Hagsmunir starfsmanna og vinnustaða fara saman

Starfsmenn verða að eiga möguleika á að þróast í starfi, til dæmis með því að sækja sér viðbótarmenntun eða símenntun.

Stofnanir og fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga þurfa að marka sér skýra mannauðsstefnu þar sem hagsmunir starfmanna og vinnustaðarins fara saman. Þegar stefnan er mörkuð verður að horfa sérstaklega til þess hlutverks starfsfólks í almannaþjónustu að veita mikilvæga og lögbundna þjónustu með almannahagsmuni að leiðarljósi.

Í stefnu BSRB er fjallað um starfsumhverfi starfsfólks í almannaþjónustu í sérstökum kafla. Þar er meðal annars lögð áhersla á að tryggja þurfi samhæfingu í þjónustunni og að bæði vinnustaðir í heild og störf einstakra starfsmanna fái að þróast í samhengi við samfélagið.

Huga þarf sérstaklega að starfsumhverfi opinberra starfsmanna, enda mikilvægt að það sé sem best svo starfsmennirnir geti tryggt almenningi öfluga og góða þjónustu. Til að svo megi vera þurfa starfsmenn til dæmis að hafa svigrúm til að þróast í starfi með því að sækja sér viðbótarmenntun eða sinna símenntun. Einnig þurfa starfsmennirnir að fá að hafa eitthvað um skipulag vinnustaða sinna að segja og hvernig þeir þróast með tímanum.

Það eru sameiginlegir hagsmunir starfsmanna og þeirra stofnanna og fyrirtækja sem þeir vinna fyrir að sveigjanleiki sé hafður að leiðarljósi og starfsmönnum gert auðveldara að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Það getur dregið verulega úr álagi og streitu og unnið gegn kulnun í starfi.

Lestu meira um stefnu BSRB um starfsumhverfi starfsfólks í almannaþjónustu.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?