Hátíðarhöld víða á baráttudegi verkalýðsins

Farnar verða kröfugöngur og haldnir baráttufundir víða um land.

Stéttarfélög um allt land standa fyrir kröfugöngum og baráttufundum á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí. BSRB tekur þátt í kröfugöngu í Reykjavík og býður gestum og gangandi í baráttukaffi að göngu lokinni.

Alþýðusamband Íslands hefur tekið saman lista yfir kröfugöngur og baráttufundi um land allt. Alls verða viðburðir í meira en 30 sveitarfélögum á landinu.

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, mun ávarpa baráttufund í Stapanum í Reykjanesbæ og verður ávarp hennar birt á vef bandalagsins þegar það hefur verið flutt.

Reykjavík

Dagskrá 1. maí hátíðarhaldanna í Reykjavík 2018 verður sem hér segir:
Safnast saman á horni Laugavegar og Snorrabrautar klukkan 13:00
Kröfugangan hefst kl. 13:30
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika í göngunni
Útifundur á Ingólfstorgi settur klukkan 14:10
Dagskrá:
Síðan skein sól
Ræða: Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
Ræða: Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM
Heimilistónar
Samsöngur– Maístjarnan og Internasjónalinn
Fundarstjóri: Þórarinn Eyfjörð
Öll dagskráin verður táknmálstúlkuð og Kolbrún Völkudóttir mun syngja á táknmáli í tónlistaratriðum.

BSRB býður upp á kaffi og kökur eftir fundinn að Grettisgötu 89.

Hafnarfjörður

Baráttutónleikar í Bæjarbíó kl. 17
Ávarp dagsins: Karl Rúnar Þórsson, formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar
Fram koma: At-Breakpoint - Bubbi Morthens – Matti Matt – Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson
Allir velkomnir í Bæjarbíó á meðan húsrúm leyfir

Akranes

Safnast verður saman við Kirkjubraut 40 kl. 14:00 og genginn verður hringur á neðri-Skaga. Undirleik í göngu annast Skólahljómsveit Akraness

Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40
Fundarstjóri og ræðumaður: Vilhjálmur Birgisson
Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög
Kaffiveitingar. Frítt í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 15:00

Borgarnes

Hátíðar- og baráttufundur í Hjálmakletti kl. 11.00
Hátíðin sett: Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands
Tónlistaratriði
Ræða dagsins: Gunnlaugur Júlíusson sveitarstjóri í Borgarbyggð
Bíbí og Björgvin Franz syngja töfrandi lög ævintýranna
Tindatríóið
Internasjónalinn
Veitingar að fundi loknum
Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Óðali kl. 13:30

Búðardalur

Baráttufundur í Dalabúð kl.14:30
Kynnir: Harpa Helgadóttir, sjúkraliði SDS
Ræða dagsins
Skemmtiatriði: Tónlistaskóli Auðarskóla og Bíbí og Björgvin Franz
Drekkhlaðið borð af hnallþórum og fleira góðgæti að hætti Katrínar

Stykkishólmur

Hótel Stykkishólmi kl.13:30
Kynnir: Helga Hafsteinsdóttir formaður SDS
Ræðumaður: Drífa Snædal, framkvæmdarstjóri SGS
Tónlistaatriði úr tónlistarskóla Stykkishólms
Rappararnir Jói P og Króli
Kaffiveitingar

Grundarfjörður

Samkomuhúsinu kl.14:30
Kynnir: Garðar Svansson stjórnarmaður SFR
Ræðumaður: Drífa Snædal, framkvæmdarstjóri SGS
Tónlistaatriði frá tónlistaskóla Grundarfjarðar
Rappararnir Jói P og Króli
Kaffiveitingar að hætti Gleym- mér- ei

Snæfellsbær

Félagsheimilinu Klifi kl.15:30
Kynnir: Samúel J Samúelsson
Ræðumaður: Drífa Snædal, framkvæmdarstjóri SGS
Tónlistaratriði frá tónlistarskóla Snæfellsbæjar
Rappararnir Jói P og Króli
Kaffiveitingar að hætti eldri borgara
Sýning eldriborgara
Bíósýning

Ísafjörður

Kröfuganga frá Alþýðuhúsinu á Ísafirði kl. 14.00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi.
Dagskráin í Edinborgarhúsinu:
Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar,stjórnandi Madis Maekalle
Ræðumaður dagsins: Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga
Söngatriði: Hjördís Þráinsdóttir syngur við undirleik Stefáns Jónssonar
Pistill dagsins: Agnieszka Tyka skrifstofukona flytur pistil á Pólsku
Dansatriði: Nemendur Henna Nurmi við Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar
Kaffiveitingar í Guðmundarbúð, Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum
Börnum á öllum aldri er boðið í Ísafjarðarbíó kl. 14.00 og 16.00

Suðureyri

Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14.00
Ræða dagsins: Lilja Rafney Magnúsdóttir
Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar
Kaffiveitingar verða í Félagsheimili Suðureyrar

Blönduós

Dagskráin hefst kl. 15:00 í félagsheimilinu
Ræðumaður dagsins: Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur nokkur lög, stjórnandi Skarphéðinn Einarsson
Afþreying fyrir börn, USAH sér um glæsilegar veitingar

Sauðárkrókur

Salur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra kl. 15.
Hátíðarræða: Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ
Skemmtiatriði: Nemendur Varmahlíðarskóla, Íris Olga Lúðvíksdóttur og Gunnar Rögnvaldsson
Geirmundur Valtýsson leikur á nikkuna
Kaffiveitingar

Fjallabyggð

Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði milli kl. 14:30 og 17:00 Margrét Jónsdóttir flytur ávarp stéttarfélaganna
Kaffiveitingar

Akureyri

Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið Kl. 13:30 og kröfugangan leggur af stað kl. 14 við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í HOFI að lokinni kröfugöngu
Ávarp: Heimir Kristinsson, varaformaður Byggiðnar
Aðalræða dagsins: Guðný Helga Grímsdóttir, húsasmiður og formaður Félags fagkvenna
Skemmtidagskrá: Birkir Blær vandræðaskáld
Kaffiveitingar

Húsavík

Hátíðardagskrá í íþróttahöllinni kl. 14:00.
Ávarp: Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar
Hátíðarræða: Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar
Maístjarnan: Reynir Gunnarsson og Steinunn Halldórsdóttir
Söngur: Karlakórinn Hreimur, stjórnandi Steinþór Þráinsson
Grín: Gísli Einarsson fjölmiðlamaður
Söngur: Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen
Veitingar

Vopnafjörður

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Ræðumaður: Kristján Eggert Guðjónsson
Tónlistaratriði
Kaffiveitingar

Borgarfjörður eystri

Hátíðardagskrá verður í Álfheimum kl. 12.00
Ræðumaður: Reynir Arnórsson
Súpa og meðlæti

Seyðisfjörður

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Herðubreið kl. 15:00
Ræðumaður: Grétar Ólafsson
Kaffiveitingar og skemmtiatriði

Egilsstaðir

Hátíðardagskrá verður á Hótel Héraði kl. 10.30
Ræðumaður: Grétar Ólafsson
Morgunverður og tónlistaratriði

Reyðarfjörður

Hátíðardagskrá verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 15:30
Ræðumaður: Þröstur Bjarnason
Kaffiveitingar og tónlist

Eskifjörður

Hátíðardagskrá verður í Melbæ Félagsheimili eldri borgara kl. 14:00
Ræðumaður: Sverrir Kristján Einarsson
Kaffiveitingar og tónlistaratriði

Neskaupstaður

Hátíðardagskrá verður á Hildibrand hótel kl. 14:00
Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson
Kaffiveitingar og tónlistaratriði

Fáskrúðsfjörður

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Skrúði kl. 15:00
Ræðumaður: Sigurður Hólm Freysson
Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
Kaffiveitingar

Stöðvarfjörður

Hátíðardagskrá í Saxa guesthouse kl. 15:00
Ræðumaður: Pálína Margeirsdóttir
Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
Kaffiveitingar

Breiðdalsvík

Hátíðardagskrá verður á Hótel Bláfelli kl. 14:00
Ræðumaður: Pálína Margeirsdóttir
Kaffiveitingar og tónlistaratriði

Djúpavogur

Hátíðardagskrá verður á Hótel Framtíð kl. 11:00
Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
Morgunverður, tónlistaratriði, myndlistasýning grunnskólans

Hornafjörður

Hátíðardagskrá á Z Bistro kl. 14:00, kaffiveitingar
Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
Lúðrasveit Hornafjarðar, leikhópur FAS, tónlistaratriði

Selfoss

Kröfuganga við undirleik Lúðrasveitar Selfoss kl. 11:00 frá Austurvegi 56 að Hótel Selfossi þar sem skemmtun fer fram. Félagar úr Sleipni fara fyrir göngunni á hestum Ræðumenn dagsins Halldóra S. Sveinsdóttir formaður Bárunnar, stéttarfélags og Ívar Haukur Bergsson námsmaður
Söngatriði frá Tónlistarskóla Árnesinga; Berglind María Ólafsdóttir og Margrét Stefánsdóttir
Heimilistónar flytja Kúst og fæjó og fleiri lög
Bifreiðaklúbbur Suðurlands sýnir glæsikerrur sínar
Teymt verður undir börnum í Sleipnishöllinni frá kl. 12.30 til 14:30

Vestmannaeyjar

Dagskráin í Alþýðuhúsinu hefst kl. 14:30
Guðmundur Þ. B. Ólafsson eldri borgari flytur 1. maí ávarp
Nemendur Tónlistarskóla Vestmannaeyja sjá um tónlistina
Kaffisamsæti í boði stéttarfélagana

Reykjanesbær

Hátíðardagskrá í Stapa kl. 14
Setning Stefán Benjamín Ólafsson formaður STFS
Ræða dagsins – Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB
Leikfélag Keflavík – Dýrin í Hálsaskógi
Söngur – Valdimar Guðmundsson og Sigríður Thorlacius
Kvennakór Suðurnesja
Kynnir: Guðbrandur Einarsson formaður VS og LÍV
Börnum boðið á bíósýningu í Sambíó í Keflavík Kl. 13:00

Sandgerði

Boðið upp á kaffi og meðlæti í miðrými Vörðunnar að Miðnestorgi 3 frá kl. 15 – 17
Létt tónlistaratriði


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?