Húsfyllir á upplýsingafundi Sameykis vegna uppsagna Reykjavíkurborgar

Kári Sigurðsson, formaður Sameykis
Húsfyllir var á upplýsingafundi Sameykis í morgun vegna þeirra umfangsmiklu skipulagsbreytinga og uppsagna sem Reykjavíkurborg hefur kynnt undanfarna daga. Á fundinum var rætt um þau réttindi sem fólk hefur í aðstæðum sem þessum og áréttað að félagsfólk getur leytað á skrifstofu Sameyskis með sín mál. Sameyki mun fylgja málum fast eftir og standa vörðu um réttindi síns félagsfólks. Að lokum tók félagsfólk til máls og var augljóst að fundargestir höfðu miklar áhyggjur vegna stöðunnar og þeirrar óvissu sem skapast hefur vegna aðgerðanna. Það á jafnt við um þau sem misst hafa vinnuna og þau sem eftir sitja. 
 
Á vef Sameykis  www.sameyki.is er að finna upplýsingar um réttindindamál á uppsagnarfresti.