Jana Eir Víglundsdóttir hefur tekið til starfa sem hagfræðingur BSRB. Jana hefur undanfarin ár starfað á spádeild Hagstofu Íslands og þar áður á deild þjóðhagsreikninga og opinberra fjármála hjá sömu stofnun. Áður var hún verkefnisstjóri miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun hjá Háskóla Íslands.
„Ég hlakka til að taka þátt í spennandi og samfélagslega mikilvægum verkefnum BSRB“ segir Jana. Jana stundaði nám í stjórnmálafræði og hagfræði við Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í hagfræði opinberrar stefnumótunar frá Barcelona School of Economics.
„Við eru mjög ánægð með að fá Jönu Eir til liðs við okkur. Hún hefur mikla reynslu af greiningarvinnu og er með þekkingu og menntun sem nýtist einstaklega vel í þeim verkefnum sem BSRB er að vinna að“ segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB.