Kjarasamninga strax – Baráttufundur opinberra starfsmanna

Baráttufundur opinberra starfsmanna mun fara fram í Háskólabíói 30. janúar klukkan 17.

Opinberir starfsmenn hafa fengið sig fullsadda af skeytingarleysi viðsemjenda nú þegar tíu mánuðir eru liðnir frá því kjarasamningar losnuðu. BSRB, Bandalag háskólamanna og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boða til baráttufundar fyrir félagsmenn sína þar sem þess verður krafist að opinberir launagreiðendur gangi þegar í stað til kjarasamninga við starfsfólk sitt.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30. janúar milli klukkan 17 og 18 í aðalsal Háskólabíós. Streymt verður frá fundinum beint á fundi aðildarfélaga BSRB, BHM og Fíh í Hofi á Akureyri og víðar um land.

Kjarasamningar þorra opinberra starfsmanna hafa verið lausir frá 1. apríl 2019 og hafa viðræður við ríki og sveitarfélög gengið afar hægt. Þolinmæði félagsmanna og samninganefnda er löngu þrotin og kominn tími á að efla samstöðuna og undirbúa aðgerðir.

Á baráttufundinum í Háskólabíói munu eftirtalin flytja stutt ávörp:

  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
  • Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, fyrir hönd BHM.
  • Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
  • Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
  • Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis.

Milli ávarpa munu Jónas Sig og og hljómsveit ásamt Reykjavíkurdætrum taka nokkur lög.

 

Fundir á landsbyggðinni

Búið er að skipuleggja fundi á landsbyggðinni þar sem tekið verður við streymi frá fundinum í Háskólabíói. Félagar í aðildarfélögum BSRB, BHM og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga velkomnir!

  • Akureyri: Hof, Strandgötu 12
  • Ísafjörður: Skrifstofa FOSVest, Aðalstræti 24, 3.hæð
  • Grundarfjörður: Skrifstofa Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu, Borgarbraut 1a
  • Borgarnes: Grunnskólinn í Borgarnesi
  • Reykjanesbær: Skrifstofa Starfsmannafélags Suðurnesja, Krossmóar 4a
  • Sauðárkrókur: Kaffistofa Skagafjarðarveitna

  • Háskólinn á Hólum: Stofa 202

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði fyrir fundinn.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?