Meta ávinning af starfi VIRK í fyrra á 21,3 milljarð

Metinn ávinningur af starfsemi VIRK er margfalt meiri en rekstrarkostnaðurinn. Mynd/VIRK

Ávinningur af starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs á árinu 2020 var metinn á um 21,3 milljarða króna að því er fram kemur í frétt á vef sjóðsins.

VIRK starfsendurhæfingarsjóður var stofnaður í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 af aðilum vinnumarkaðarins, þar á meðal BSRB, í þeim tilgangi að standa fyrir starfsendurhæfingu í kjölfar hrunsins.

Talnakönnun hefur nú tekið saman skýrslu um starfsemi sjóðsins þar sem metið er hver ávinningur samfélagsins var af starfsemi VIRK á síðasta ári. Á sama tíma og ávinningur af starfseminni nam 21,3 milljörðum var rekstrarkostnaður sjóðsins um 3,5 milljarðar króna. Þetta eru sambærilegar tölur og á árinu þar á undan.

Í skýrslu Talnakönnunar var einnig reiknaður út ávinningur samfélagsins af virkni hvers einstaklings sem útskrifaðist úr starfsendurhæfingu á árinu 2020. Sá ávinningur nam um 13,3 milljónum króna að meðaltali á hvern einstakling.

Þetta er áttunda árið í röð sem Talnakönnun greinir árangurinn og ávinninginn af starfsemi VIRK. Eins og áður var unnið út frá mælikvarða á sparnað af starfsemi VIRK sem tók mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Á þeim átta árum sem Talnakönnun hefur reiknað út ávinninginn af starfsemi VIRK hefur hann numið alls 147,8 milljörðum á föstu verðlagi. Á sama tímabili hefur kostnaður við rekstur sjóðsins numið alls 23,8 milljörðum króna.

Sýnt er fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu, eins og fram kemur í frétt á vef sjóðsins.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?