Minnum á fund um heilbrigðisþjónustuna

Allir eru velkomnir á fundinn á meðan húsrúm leyfir.

Við minnum á opinn fund sem ASÍ og BSRB boða til um fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar fimmtudaginn 13. febrúar á Hótel Natura. Fundurinn verður milli klukkan 8:30 og 10:00 en boðið verður upp á morgunkaffi og léttar veitinga frá klukkan 8:00.

Fyrirlesarar á fundinum verða Birgir Jakobsson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur. Einnig verða stutt innslög frá Páli Matthíassyni forstjóra Landsspítala og Bjarna Smára Jónassyni forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar og skrá sig til leiks á Facebook-viðburði fundarins.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Fundinum verður streymt á vefsíðum ASÍ og BSRB fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.

Streymið mun opnast hér að neðan á meðan fundi stendur.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?