Námskeið um lífeyrismál við starfslok

Metþátttaka var á síðasta námskeið Brúar og LSR um lífeyrismál við starfslok.

Boðið verður upp á námskeið um lífeyrismál við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar fimmtudaginn 4. apríl næstkomandi. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42, 2. hæð.

Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu réttindi sjóðfélaga, sýnt hvar upplýsingar um lífeyrisréttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.

Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðið því skipt upp eftir því.

  • B deild - LsRb klukkan 16.30
  • A deild klukkan 17.30
  • V deild kllukkan 18.30

Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum vef Brúar lífeyrissjóðs.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?