Óalgengt að þolendur áreitni leiti sér aðstoðar

Starfsmenn eiga rétt á því að njóta verndar fyrir áreitni og ofbeldi á vinnustað.

Bæta þarf þekkingu starfsmanna og yfirmanna á kynbundnu áreitni og ofbeldi á vinnustað bæði á því hvernig vinna á að því að fyrirbyggja það og á viðbrögðum þegar tilvik koma upp. Allt of óalgengt er að þolendur áreitni og ofbeldis á vinnustöðum leiti sér aðstoðar.

Allt launafólk á sjálfsagðan rétt á því að búa við gagnkvæma virðingu í samskiptum á vinnustað sínum. Starfsmenn eiga því rétt til að njóta skilyrðislausrar verndar fyrir kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Þegar brotið er á starfsfólki á það að geta leitað til síns yfirmanns til að fá úrlausn sinna mála. Ef það ber ekki árangur getur starfsfólkið leitað til síns stéttarfélags.

Áreitni og ofbeldi getur haft ýmiskonar afleiðingar, bæði fyrir þá einstaklinga sem fyrir því verða, en einnig fyrir vinnustaðina og samfélagið í heild. Einstaklingarnir geta upplifað verri heilsu, streitu, þunglyndi, niðurlægingu og pirring, auk þess sem áreitnin og ofbeldið geta haft í för með sér tekjutap fyrir þolendurna.

Þegar kemur að kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi eru lögin skýr. Atvinnurekendum ber einfaldlega skylda til að vernda starfsmenn fyrir áreiti, hvort sem er af völdum samstarfsmanna, yfirmanna eða utanaðkomandi aðila, svo sem viðskiptavina. Atvinnurekendum ber einnig að bregðast hratt við kvörtunum og tryggja góða líðan þess sem kvartar, hvort sem athugun leiðir í ljós að um áreiti hafi verið að ræða eða ekki.

BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa hafa gefið út bækling þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Hægt er að sækja bæklinginn rafrænt á íslensku, ensku og pólsku.

Lestu meira um baráttu BSRB gegn kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?