Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Genfarskólann 2023

Hluti af kennurum og nemendum við Genfarskólann í gegnum tíðina samankomin á ráðstefnu á vegum ILO og Norrænu ráðherranefndarinnar á Íslandi 2019.

Virkir félagsmenn í aðildarfélögum BSRB sem hafa áhuga á að læra meira um alþjóðamál verkalýðshreyfingarinnar geta sótt um að komast í nám í Norræna lýðháskólanum í Genf, Genfarskólanum. Umsóknarfrestur er til 15. desember.

Norræni Lýðháskólinn í Genf, Genfarskólinn, er ætlaður virkum félagsmönnum í stéttarfélögunum. Gert er ráð fyrir því að umsækjendur hafi áhuga á alþjóðamálum verkalýðshreyfingarinnar. Æskilegt er að þeir hafi sótt fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar og þekki til starfsemi stéttarfélaga og samtaka þeirra hér á landi. Aðild að Genfarskólanum eiga MFA-samböndin í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og hér á landi. Skólinn er haldinn samhliða Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf og dregur nafn sitt af því. Nemendur kynnast þinghaldinu og Alþjóðavinnumálastofnuninni ILO. Stofnunin starfar að vinnumálum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúar á ILO-þinginu eru frá stjórnvöldum, atvinnurekendum og samtökum launafólks um allan heim. Þátttakendur kynnast norrænu samstarfi á vettvangi ILO og geta kynnt sér ýmis alþjóðasamtök verkalýðshreyfingarinnar sem starfa í tengslum við ILO.

Námið fer fram í þremur lotum:

Fornámskeið: 20.-23. apríl, Runö í Svíþjóð

Fjarnám og fundir í apríl og maí

Aðalnámskeið: 1.-18. júní í Genf í Sviss

Námið fer fram í formi fjarnáms, fyrirlestra, hópastarfs og þátttakendur fylgjast með fundum þings ILO og nefndarstarfi þess. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á einu Norðurlandamáli og hafi auk þess góða enskukunnáttu.

Íslensku þátttakendurnir á Genfarskólanum hafa verið tveir undanfarin ár. Þeir hafa sótt fundi hér á landi, sem haldnir hafa verið til undirbúnings þátttöku í skólanum. Kynningarfundir verða haldnir í byrjun mars.

Á kynningarfundunum munu þátttakendur m.a. hitta fulltrúa Íslands sem sækja ILO þingið, ásamt þátttakendum síðasta árs.

Námskeiðsgjöld, gisting og flugfargjöld eru greidd fyrir einn þátttakanda, hjá hvorum samtökum fyrir sig (ASÍ og BSRB). Ekki eru greiddir dagpeningar meðan á dvölinni stendur en greiddur er út styrkur til að mæta kostnaði þátttakenda.

Umsóknarfrestur er til 15. desember. Nánari upplýsingar má finna á vef Genfarskólans.

Hægt er að sækja um þátttöku í skólanum hér


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?