Sameyki kynnir stofnanir ársins 2020

Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis (til hægri) og Garðar Hilmarsson, varaformaður Sameykis, afhentu stofnunum ársins viðurkenningu. Sirrý Arnardóttir stýrði málþinginu.

Sameyki kynnti valið á Stofnun ársins 2020 í gegnum streymi í gær, en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna í könnun Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu. 

Stofnanir ársins 2020 eru Norðlingaskóli, Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Jafnréttisstofa. Hástökkvarar ársins eru Umhverfis-og skipulagssvið og Sjálfsbjargarheimilið.

Könnunin náði til um 12 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu, bæði hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignarstofnunum. Hún er unnin í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneytisins og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu það er trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi,  sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja  fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur til að gera vel í starfsmannamálum og að auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum

Niðurstöðurnar voru kynntar að loknu vel heppnuðu málþingi um framtíðarvinnumarkaðinn sem haldið var í tengslum við afhendingu viðurkenninganna til Stofnana ársins. Viðburðurinn var sendur út í streymi frá Hilton Nordica þar sem Bergur Ebbi, Guðfinna Harðardóttir, Huginn Freyr Þórðarson og Karl Sigurðsson fjölluðu meðal annars um þá færni sem við þurfum til framtíðar og hvernig styðja má við starfsfólk og stjórnendur á umbreytingatímum. 

Eftirfarandi stofnanir hljóta titilinn Stofnun ársins og Stofnun ársins – borg og bær en þeim er skipt niður eftir stærð stofnunarinnar. 

Stofnun ársins 2020 -  borg og bær 
  • Norðlingaskóli (50 starfsmenn eða fleiri) 
  • Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar (Færri en 50 starfsmenn)
Hástökkvari ársins 2020 
  • Umhverfis-og skipulagssvið Reykjavíkurborgar 
Stofnun ársins 2020 -  ríki, sjálfseignarstofnanir og fleira
  • Nýsköpunarmiðstöð Íslands (Fleiri en 50 starfsmenn) 
  • Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum (20–49 starfsmenn)
  • Jafnréttisstofa (Færri en 20 starfsmenn) 
Hástökkvari ársins 2020
  • Sjálfsbjargarheimilið

BSRB tekur undir með Sameyki stéttarfélagi í almannaþjónustu og óskar starfsmönnum og stjórnendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.

Hægt er að horfa á streymi frá valinu á stofnun ársins og málþingi um framtíðarvinnumarkaðinn sem Sameyki stóð fyrir í gær.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?