Samið um sálfræðiþjónustu eftir stór áföll

Samkomulag LSS við Samband íslenskra sveitarfélaga var undirritað í hádeginu í dag.

Mikilvægi sálfræðilegs stuðnings í kjölfar stórra áfalla er staðfest með samkomulagi milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem undirritað var í dag. Með samkomulaginu er tryggt að slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fái greiðan og tryggan aðgang að sálfræðiþjónustu.

Samkomulagið felur í sér að slökkviliðsstjórar geta óskað eftir sálfræðiþjónustu þegar þeir telja þörf á fyrir starfsmenn þeirra og það sama gildir um sjúkraflutningamenn. LSS, sem er eitt aðildarfélaga BSRB, mun einnig hvetja ríkið til þess að veita sjúkraflutningamönnum sem starfa á þess vegum sömu þjónustu.

Þá hefur Neyðarlínan samþykkt að innleiða ferli sem á að virkja sálrænan stuðning við vissar aðstæður. Um er að ræða tilraunaverkefni sem verður endurmetið um áramót.

„Við vonumst til þess að fá svar sem allra fyrst frá ríkinu því þetta mál brennur á þessum stéttum sem daglega horfast í augu við mjög erfiðar aðstæður, sem oft er erfitt að vinna úr sem einstaklingur. Þetta er afar mikilvægt skref í heildrænni hugsun um velferð okkar starfsmanna því eins og almenningur veit þá geta bæði áföll og andlegt álag leitt af sér fjölmarga kvilla með ófyrirsjáanlegum afleiðingum,“ segir Magnús Smári Smárason, formaður LSS, í frétt á vef landssambandsins. Samningur hefur verið gerður við Sálfræðingana á Lynghálsi til að sinna þessari þjónustu á landsvísu.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?