Skerpt á áherslum á framhaldsþingi BSRB

Þingfulltrúar greiða atkvæði á 45. þingi BSRB í október 2018

Framhaldsþing BSRB fer fram á Hilton Reykjavík Nordica dagana 24.-25. mars nk. Um er að ræða framhald á 46. þingi bandalagsins sem var sett í lok september á síðasta ári en vegna sóttvarnartakmarkana var hluta þingsins frestað. Á þinginu í haust var meðal annars fjallað um skýrslu stjórnar, lagabreytingar samþykktar auk þess sem ný stjórn var kjörin.

Sá dagskrárhluti sem eftir stendur snýr að stefnumótunarvinnu bandalagsins en allt starf BSRB grundvallast á þeirri stefnu sem mótuð er á þingum bandalagsins. Stefnumótunarvinnan fer fram í fimm málefnahópum sem meira en 200 þingfulltrúar koma að.

Nánari upplýsingar um málefnahópa, tillögu að stefnu bandalagsins, dagskrá þingsins og ýmislegt fleira má nálgast á þingvef BSRB


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?