Skýrsla stjórnar 2026

Aðalfundur BSRB 2026 fer fram fimmtudaginn 15. maí kl. 10:00 í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Þar á meðal er kynning á skýrslu stjórnar.  Á meðal efnis skýrslunnar er ítarleg umfjöllun um varnarbaráttu BSRB á síðasta starfsári, gegn áformum stjórnvalda um afnám áminningarskyldunnar og fleiri réttinda og gegn vinnubrögðum og samráðsleysi ríkisstjórnarinnar. 

Auk þess er fjallað um verkefni bandalagsins tengd efnahags- og kjaramálum, húsnæðismálum, jafnréttismálum og Kvennaári, svo fátt eitt sé nefnt.

 

Hér má lesa skýrslu stjórnar í heild sinni