Stjórn Bjargs skoðaði íbúðir í byggingu

Stjórn Bjargs íbúðafélags ásamt starfsmönnum kynntu sér uppbygginguna.

Hjá Bjargi íbúðafélagi hefur verið mikið og gott uppbyggingarstarfs síðan það var stofnað af ASÍ og BSRB árið 2016. Stjórn Bjargs fékk nýverið leiðsögn Björns Traustasonar framkvæmdastjóra félagsins ásamt starfsmönnum þess um byggingarsvæði félagsins í Reykjavík og á Selfossi.

Byrjað var á að skoða fallegt og skemmtilegt verkefni við nýja götu í Laugarneshverfi, Hallgerðargötu, sem kennd er við sögupersónu íslendingasagna Hallgerði langbrók sem bjó í Laugarnesi. Götumyndin er litrík eins og sögupersónan sjálf. Gætt var að því að húsin væru umhverfisvæn og ódýr í bygginu en án þess að það kæmi niður á gæðum þeirra. Þau er að Norrænni fyrirmynd og passa vel að eldri húsunum í hverfinu. Bjarg íbúðarfélag reisti 80 íbúðir í Hallgerðargötu við Kirkjusand í Laugarnesi, allt tveggja til fimm herbergja íbúðir í tveggja hæða timburhúsum.

Hallgerðargata í Laugarneshverfi.
Hallgerðargata í Laugarneshverfi.

 

Gengið um í Bátavogi.
Gengið um í Bátavogi.


Næst lá leið verkalýðsforystunnar inn í Voga þar sem félagið er að reisa á besta stað fyrir ofan smábátahöfnina Snarfara. Reistar verða 74 íbúðir við Bátavog sem er nafn við hæfi. Frá Bátavogi er útsýnið fallegt upp í gróinn Elliðaárdalinn til suðurs og út með sundunum bláu til vesturs. Áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði afhentar á hausti komanda. Íbúðirnar eru í fjölbreyttum gerðum og stærðum. Allt frá stúdíóíbúðum upp í rúmgóðar 5 herbergja íbúðir. Allar íbúðirnar eru með góðum innréttingum og vel skipulagðar.

 

Bátavogur í Vogahverfi.
Bátavogur í Vogahverfi.


Silfratjörn og Gæfutjörn

Því næst var haldið upp í Úlfarsárdal þar sem Bjarg byggir við Silfratjörn 82 leiguíbúðir á fögrum stað við Úlfarsfell og blasir fellið við þeim sem þar búa. Íbúðirnar eru allt frá stúdíóíbúðum og tveggja herbergja upp íbúðum í fimm herberja íbúðir. Unga kynslóðin sem var að leik í góða veðrinu tók á móti verkalýðsforingjunum og benti þeim á hvar þau byggju og gaman væri að leika sér við Silfratjörn. Fleiri íbúðir við Gæfutjörn eru í byggingu og er áætlað að þær verði afhentar leigjendum í október.

Unga kynslóðin benti Drífu Snædal forseta ASÍ að það væri gott að búa við Silfratjörn.
Unga kynslóðin benti Drífu Snædal forseta ASÍ að það væri gott að búa við Silfratjörn.


Þá var ekið á Selfoss þar sem skoðað var timburhús við Heiðarstekk 1 sem er byggt úr svokölluðum kubbaeiningum sem framleiddar eru hjá SG húsum. Þar mun Bjarg bjóða 28 íbúðir til leigu og áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði afhentar nú í júní og þær síðustu í október.

Heiðarstekkur 1 á Selfossi er timburhús sem byggt er úr kubbaeiningum sem SG hús framleiðir.
Heiðarstekkur 1 á Selfossi er timburhús sem byggt er úr kubbaeiningum sem SG hús framleiðir.


Bjarg er leigufélag í eigu BSRB og ASÍ sem rekið er án hagnaðarsjónarmiða. Félaginu er ætlað að byggja upp og leigja út íbúðir fyrir tekjulægstu félagsmenn heildarsamtakanna tveggja. Hægt er að kynna sér starfsemi Bjargs betur á vef félagsins, þar sem einnig má sækja um íbúðir.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?