Til móts við ný tækifæri á menntadegi BSRB

Fjórða iðnbyltingin, nýjar áherslur og áskoranir í menntamálum og innra starf í breyttum heimi eru meðal umfjöllunarefna á Menntadegi BSRB sem fer fram miðvikudaginn 24. mars milli klukkan 10 og 14 undir yfirskriftinni „Til móts við ný tækifæri“.

Fundurinn verður rafrænn og geta þeir sem áhuga hafa fylgst með með því að smella hér.

Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:

Setning menntadags
  • Karl Rúnar Þórsson, formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar og formaður menntanefndar BSRB

 

1. Fjórða iðnbyltingin – breytingar, áskoranir og tækifæri

Tækifæri fjórðu iðnbyltingarinnar
  • Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, eigandi og sérfræðingur hjá Aton.JL
Fjórða iðnbyltingin – stefna og aðgerðir stjórnvalda
  • Henný Hinz, aðstoðarmaður ríkisstjórnar á sviði vinnumarkaðs-, efnahags- og loftlagsmála
Greining á mannaflaþörf og færnispá
  • Karl Sigurðsson, sérfræðingur í vinnumarkaðs- og menntamálum hjá BSRB


2. Nýjar áherslur og áskoranir í menntamálum

Að huga að eigin starfsþróun
  • Guðfinna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Starfsmenntar
Trú á eigin getu í stafrænu samfélagi
  • Vigdís Þyrí Ásmundsdóttir, framkvæmdastjóri Framvegis og Helga Tryggvadóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Framvegis
Hverjir skipta máli?
  • Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms í Borgarholtsskóla


- Hádegishlé 12:30 til 13:00-

 

3. Innra starf í breyttum heimi

Ný tækifæri í trúnaðarmannafræðslu
  • Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, sérfræðingur í fræðslu- og kynningarmálum hjá Félagsmálaskólanum og Alþýðusambandi Íslands
Færni til framtíðar – næstu skref BSRB og aðildarfélaga
  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Upptaka af fundinum verður gerð aðgengileg á vef BSRB að fundi loknum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?