Uppbygging hagkvæmra leiguíbúða gengur hratt

Fyrstu íbúðirnar sem Bjarg lauk við og kom í útleigu eru við Móaveg í Grafarvogi.

Uppbygging Bjargs íbúðafélags, sem stofnað var af BSRB og ASÍ, á hagkvæmum leiguíbúðum hefur gengið hraðar en vonir stóðu til. Þegar eru ríflega 200 íbúðir komnar í útleigu og rúmlega 300 til viðbótar eru í byggingu.

Bjarg var stofnað árið 2016 með það að markmiði að byggja hagkvæmar íbúðir sem félagsmenn BSRB og ASÍ gætu leigt í langtímaleigu.

Félagið hefur þegar afhent 223 íbúðir til leigjenda. Félagið hefur þó byggt fleiri íbúðir því samkvæmt samningi fá Félagsbústaðir hluta af íbúðunum. Bjarg hefur því lokið við byggingu á alls 271 íbúð. Flestar íbúðirnar eru við Móaveg í Grafarvogi, alls 155 talsins, en einnig hefur verið flutt inn í allar 33 íbúðirnar sem reistar voru á Akranesi og 83 íbúðir við Urðarbrunn í Grafarholti.

Þá eru alls 313 íbúðir til viðbótar þegar komnar í byggingu. Þar má nefna 99 íbúðir í Hraunbæ, 82 íbúðir við Silfratjörn í Úlfarsárdal, 80 íbúðir við Kirkjusand og 31 íbúð á Akureyri. Undirbúningur fyrir fleiri nýbyggingar er í fullum gangi. Alls eru nú 128 íbúðir í hönnunarferli, 230 til viðbótar í undirbúningi og 174 í umsóknarferli.

Bjarg hefur byggt upp fyrir 36 milljarða, en stofnframlög ríkis og sveitarfélaga voru alls 11 milljarðar króna. Félagið hefur gert viljayfirlýsingar við sveitarfélög um stofnframlög og lóðir fyrir alls um 1.300 íbúðir.

Hagkvæmt leiguverð

Til að geta boðið hagkvæmt leiguverð byggir Bjarg hagkvæmar smærri íbúðir sem lítið framboð hefur verið af á fasteignamarkaði. Leiguverðið er mun hagkvæmara en á almenna leigumarkaðinum og er hugsað fyrir þá sem vilja örugga langtímaleigu. Sem dæmi má nefna að leiga á tveggja herbergja íbúð er um 125 þúsund krónur á mánuði, þriggja herbergja íbúð er leigð á um 165 þúsund og fjögurra herbergja íbúð á um 185 þúsund krónur á mánuði.

Nánari upplýsingar um Bjarg íbúðafélag má finna á vef félagsins. Þar er einnig hægt að sækja um leiguíbúð hjá félaginu.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?