Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins kynnir nýja skýrslu um stöðu félagsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem starfa í leik- og grunnskólum.
Niðurstöðurnar varpa ljósi á fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og andlega- og líkamlega heilsu þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum í samanburði við annað launafólk.
Kynningin fer fram fimmtudaginn 30. apríl klukkan 10:00 í ReykjavíkurAkademíunni, Hafnarstræti 5.
Dagskrá:
10:00-10:15 Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, kynnir helstu niðurstöður.
10:15-10:25 Umræður og spurningar.