Aðgengi að vatni sjálfsögð mannréttindi

Þó enginn skortur sé á hreinu vatni á Íslandi er það ekki raunin víða um heim.

BSRB hefur, eins og önnur heildarsamtök launafólks víða um heim, barist fyrir því að óhindrað aðgengi almennings að neysluvatni flokkist sem sjálfsögð mannréttindi.

Þó Íslendingum þyki ekkert eðlilegra en að geta skrúfað frá næsta krana til að fá hreint drykkjarvatn getum við ekki litið framhjá þeirri staðreynd að staðan er allt önnur víða um heim. Að mati BSRB er það hluti af sjálfsögðum mannréttindum fólks að hafa aðgang að hreinu vatni en frumskilyrði þess að svo sé er að eignarhald á vatni sé samfélagslegt og nýting þess sjálfbær. Sporna verður við þeirri óheillaþróun víða um heim að vatn sé orðið eins og hver önnur verslunarvara.

Reka þarf vatnsveitur á félagslegum grunni þannig að tillit sé tekið til hagsmuna almennings og honum tryggður aðgangur að nægilegu hreinu vatni til drykkjar, matargerðar og hreinlætis á viðráðanlegu verði. Í stefnu BSRB í umhverfismálum er einnig fjallað um mikilvægi þess að tryggja að allt grunnvatn sé í almannaeigu, ekki bara vatnsveiturnar sem nýta það.

Höfum þetta í huga næst þegar við fáum okkur ferskan vatnssopa.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?