Allir velkomnir á fund um Bjarg íbúðafélag

Staðan og framtíðarhorfur hjá Bjargi íbúðafélagi verður til umræðu á fundinum.

BSRB minnir á morgunverðarfund um Bjarg íbúðarfélag milli klukkan 8 og 9 í fyrramálið, 13. september. Þar verður fjallað um verkefni félagsins og framtíðarsýn ásamt útliti og hönnun íbúða.

  • Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags mun opna fundinn með erindi um verkefni félagsins og framtíðarsýn.
  • Arkitekt frá THG arkitektum mun fjalla um útlit og hönnun íbúða fyrir Bjarg.

Fundurinn fer fram í húsnæði BSRB við Grettisgötu 89. Boðið verður upp á léttan morgunverð fyrir fundargesti. Fundurinn er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir og er aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?