Ályktun BSRB um lög á verkföll

Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem lagasetningu stjórnvalda á verkfallsaðgerðir BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er mótmælt.

Stjórn BSRB bendir á að í samningaviðræðum síðustu vikna hefur samninganefnd ríkisins talið sig bundna af ákvæðum í nýgerðum samningum á almennum markaði. Sú afstaða ríkisins hefur því skert samningsfrelsi BHM og Félags  íslenskra hjúkrunarfræðinga. Nú þegar stjórnvöld hafa ákveðið að koma í veg fyrir frekari verkfallsaðgerðir umræddra félaga með lögum hefur samningsstaða BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga versnað enn frekar.

Forsenda þess að kjaradeilur leysist á farsælan hátt er að samið sé um niðurstöðuna á jafnréttisgrundvelli við samningaborðið. Nýjasta útspil ríkisins hefur veikt samningsstöðu opinberra starfsmanna til muna og jafnframt fært kjarasamningaviðræðurnar fjær þeirri norrænu aðferðarfræði við gerð samninga sem ríkið hefur þó lagt mikla áherslu á að hér verði tekin upp.

Að lokum hvetur stjórn BSRB stjórnvöld til að axla ábyrgð á stöðunni og koma með raunhæfar lausnir að samningaborðinu í stað þess að bera fyrir sig ákvæði í samningum á almennum markaði. Ályktun stjórnar BSRB má sjá í heild hér að neðan.

 

Ályktun stjórnar BSRB vegna lagasetningar á verkfall BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Stjórn BSRB mótmælir harðlega lagasetningu á verkfallsaðgerðir BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Verkfallsrétturinn er grundvallarréttur launafólks og þann rétt ber að virða.

Augljóst er að forsenda þess að kjaradeila félaganna og ríkisins leysist á farsælan hátt er að um hana verði samið á jafnréttisgrundvelli við samningaborðið. Nú þegar hafa ákvæði í nýgerðum samningum á almennum markaði sett samningafrelsi opinberra starfsmanna hömlur. Á meðan samninganefnd ríkisins telur sig bundna af ákvæðum samninga á almenna markaðnum höldum við áfram að fjarlægjast þá norrænu aðferðafræði við kjarasamningsviðræður sem ríkið hefur þó lagt mikla áherslu á að hér verði tekin upp.

Lagasetning á verkfallsaðgerðir BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegur enn frekar að samningsrétti opinberra starfsmanna og veikir samningsstöðu félaganna til muna.

Stjórn BSRB krefst þess að stjórnvöld axli sína ábyrgð á þeirri alvarlegu stöðu sem nú er á vinnumarkaði og komi nú þegar fram  með raunhæfar lausnir að samningaborðinu í stað þess að skýla sér á bak við samninga sem gerðir hafa verið á almenna markaðnum.

 

                                                                                                              Reykjavík, 13. júní 2015





Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?