Ályktun félagsfundar starfsfólks Isavia

Sameiginlegur félagsfundur starfsmanna Isavía var haldinn í gær. Fundurinn var afar fjölmennur en þar var samankomið félagsfólk frá þremur félögum innan BSRB, en það eru SFR stéttarfélag í almannaþjónustu, FFR (Félag flugmálastarfsmanna ríkisins) og LSS (Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna).

Mikil samstaða var meðal fundarmanna og ályktaði fundurinn m.a. á þá leið að fullum stuðningi var lýst yfir við sameiginlega samninganefnd félaganna. Einnig var þess var krafist að Isavía hlustaði á þær sanngjörnu kröfur sem settar hafa verið fram í kröfugerð félaganna, en álag hefur aukist gífurlega á starfsfólk undanfarin ár með aukningu flugfarþega. Ljóst er að starfsfólk Isavia er fyrir löngu orðið óþolinmótt eftir ásættanlegri lausn deilunnar, en kjarasamningsviðræðum hefur þegar vísað til sáttasemjara. 

 

Ályktun frá sameiginlegum félagsfundum fimmtudaginn 13. mars 2014:

Í þrjá mánuði hefur Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna átt í viðræðum við Isavia ohf og Samtök atvinnulífisins um gerð nýs kjarasamnings fyrir félagsmenn sína. Félögin hafa með sér samstarf og hafa skipað sameiginlega samninganefnd, enda lýsa kröfur félaganna sameiginlegum áhersluþáttum.

Viðræður við Isavia og SA hafa gengið illa og viðsemjendur ekki komið af neinni alvöru að úrlausn þeirra mála sem félögin vilja ræða. Þar er um að ræða leiðréttingar og endurskipulagningu, auk lagfæringa í framkvæmd kjarasamnings. Nú er svo komið að kjaradeilunni hefur verið vísað til Ríkissáttasemjara. Félagsmenn vænta þess að undir verkstjórn hans komi Isavia og SA með einhverjar þær lausnir sem hægt verði að vinna með af fullri alvöru. 

Félagsmenn FFR, SFR og LSS krefjast þess að Isavia og SA komi að samningaborði með þann ásetning að semja um leiðréttingar og breytingar á skipulagi og vinnuumhverfi félagsmanna.

Gríðarleg aukning flugfarþega hefur orðið á undanförnum árum. Starfsmenn Isavia hafa sýnt þeirri aukningu skilning og tekist á við aukið vinnuálag með þolinmæði og þrautseigju. Á síðustu árum hafa félagsmenn sýnt Isavia mikinn skilning vegna breytinga á rekstrarumhverfi. Ljóst er að Isavia sýnir gríðarlegan rekstrarhagnað og teljum við vel tímabært að fyrirtækið mæti kröfum starfsmanna um að vinnuframlag þeirra verði metið að verðleikum með bættum kjörum og starfsumhverfi.

Sameiginlegir félagsfundir FFR, SFR og LSS lýsa yfir fullum stuðningi við sameiginlega samninganefnd félaganna. Fundirnir krefjast þess að samninganefndin leggi þunga áherslu á að ná samningsmarkmiðum félaganna. Það er kominn tími til að fyrirtækið hlusti á þær sanngjörnu kröfur sem settar hafa verið fram og sýni vilja til að leysa málin í sátt.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?