Ályktun stjórnar BSRB

Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem fjallað er um neikvæða og villandi umræði í garð opinberra starfsmanna. Stjórnin mun í dag og á morgun funda á Akureyri.

Í ályktun stjórnar sem samþykkt var á fundi hennar fyrr í dag segir m.a.: „Stjórn BSRB krefst þess að umræða um rekstur ríkisins og opinbera starfsmenn byggi á staðreyndum en ekki ósönnum fullyrðingum, sem virðast vera settar fram í þeim tilgangi að réttlæta frekari niðurskurð og skerða réttindi opinberra starfsmanna.“

Ályktunina í heild má sjá hér að neðan

Ályktun stjórnar BSRB um villandi umræðu um opinbera starfsmenn

Stjórn BSRB harmar þá neikvæðu og villandi umræðu sem hefur verið áberandi í garð opinberra starfsmanna á undanförnum vikum.

Störfum á vegum ríkisins hefur fækkað um meira en 10% frá efnahagshruni. Þrátt fyrir mikla fækkun starfsfólks hefur stofnunum ríkisins verið gert að halda óbreyttu þjónustustigi. Yfirgnæfandi meirihluti opinberra starfsmanna sinnir grunnstoðum samfélagsins. Þeir veita heilbrigðisþjónustu og umönnun, tryggja öryggi okkar og veita menntun. Það fólk sem í almannaþjónustunni starfar hefur frá efnahagshruni lagt á sig ómælt erfiði til að halda grunnþjónustu landsins gangandi.

Þrátt fyrir það hefur hluti kjörinna fulltrúa reglulega vegið gróflega að starfsheiðri þessa fólks með mjög ósanngjörnum hætti. Ítrekað hafa rangfærslur um réttindi opinberra starfsmanna, kjör þeirra og fjölda verið sett fram sem sannindi. Allt tal um frekari fækkun opinberra starfsmanna myndi aftur á móti kalla á gjörbreytta þjóðfélagsmynd – skert öryggi, lakari menntunarmöguleika og veikara heilbrigðiskerfi.

Stjórn BSRB krefst þess að umræða um rekstur ríkisins og opinbera starfsmenn byggi á staðreyndum en ekki ósönnum fullyrðingum, sem virðast vera settar fram í þeim tilgangi að réttlæta frekari niðurskurð og skerða réttindi opinberra starfsmanna.


                                                                                              Akureyri, 7. október 2014

 

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?