Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs

Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 27. maí kl. 16 í nýjum húsakynnum sjóðsins, 7. hæð í Turninum, að Smáratorgi 3, Kópavogi.

Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt á fundarsetu á ársfundinum.

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.

 

Dagskrá

1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2025
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt
5. Kynning á breytingum á samþykktum sjóðsins
6. Önnur mál