Ársskýrsla BSRB komin á netið

Meðal efnis skýrslunnar er ítarleg umfjöllun um kjarasamninga starfsársins, helstu málefni og verkefni formannaráðs, stjórnar og skrifstofu. Þá er farið yfir helstu verkefni sem unnin hafa verið frá síðasta aðalfundi.

Á meðal þeirra málaflokka sem fjallað er um eru verkefni bandalagsins tengd kjaramálum, húsnæðismálum og leiðréttingu á kjörum kvennastétta svo eitthvað sé nefnt. Þá er farið ítarlega yfir störf bandalagsins bæði hvað varðar málefnastarf og hagsmunagæslu innanlands og utan.

Í þetta sinn er skýrsla stjórnar að fullu stafræn og því aðgengileg á spjaldtölvur og síma.

Skýrsluna má finna hér: https://bsrb.foleon.com/bsrb2023/arsskyrsla 

Eldri skýrslur stjórnar má finna á síðunni Útgefið efni þar sem einnig má finna fréttabréf, bæklinga, skýrslur og annað efni sem bandalagið hefur sent frá sér nýverið.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?