ASÍ lýsir yfir fullum stuðningi við verkföll BSRB

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir fullum stuðningi við yfirstandandi vinnustöðvun félagsfólks aðildarfélaga BSRB gagnvart sveitarfélögum landsins og beinir þeim tilmælum til félagsfólks aðildarsamtaka sinna að ganga hvorki beint né óbeint í störf félagsfólks aðildarfélaga BSRB meðan á vinnustöðvun stendur.

Meginreglan um að jöfn laun skuli greiða fyrir sambærileg störf er mikilvæg á íslenskum vinnumarkaði og þau stéttarfélög og einstaklingar sem telja á sig hallað eru hvattir áfram til að knýja fram leiðréttingu. Jafnframt er höfðað til ábyrgðar atvinnurekenda, og þá sérstaklega opinberra að axla ábyrgð á sanngjörnum vinnumarkaði og mismuna ekki fólki á grundvelli stéttarfélagsaðildar.

Ályktun  miðstjórnar má finna hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?