Bæjarstarfsmenn undirrita kjarasamning

Frá undirritun rétt eftir miðnætti


Samninganefnd BSRB gagnvart Sambandi íslenskra sveitararfélaga, fyrir hönd 14 aðildarfélaga BSRB, skrifaði rétt eftir miðnætti undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambandsins með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Samningurinn nær til 7000 félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögunum og gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023. Boðuðum verkföllum sem áttu að hefjast á miðnætti hefur fyrir vikið verið aflýst.

Meðal helstu atriða kjarasamningsins eru:

  • Stytting vinnuvikunnar sem hefur um árabil verið eitt af helstu baráttumálum BSRB
  • Laun hækka í samræmi við lífskjarasamninginn svokallaða
  • Stofnun Félagsmannasjóðs sem felur í sér 80 þúsund króna árlega greiðslu til félagsmanna
  • 30 daga orlof fyrir alla

Hinn nýi kjarasamningur verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum.

Þau félög sem hafa undirritað kjarasamninginn og aflýst verkföllum gagnvart Sambandi íslenskra sveitarfélaga eru:

Kjölur, stéttarfélag í almannaþjónustu

Sameyki, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu

FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Starfsmannafélag Kópavogs

Starfamannafélag Mosfellsbæjar

Starfsmannafélag Suðurnesja

Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi

Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum

Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu

Starfsmannafélag Fjallabyggðar

Starfsmannafélag Fjarðabyggðar

Starfsmannafélag Húsavíkur

Starfsmannafélag Vestmannaeyja


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?