Bjarg og Búseti byggja saman í Bryggjuhverfinu

Alls verða 124 íbúðir Bjargs og Búseta reistar við Tangabryggju í Bryggjuhverfi Reykjavíkur.

Fyrsta skóflustungan að 124 nýjum íbúðum sem Bjarg íbúðafélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag byggja við Tangabryggju í Bryggjuhverfi Reykjavíkur var tekin í gær.

Bjarg er húsnæðis sjálfseignastofnun, stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Félagið er nú þegar með yfir 200 íbúðir í útleigu á þremur ólíkum stöðum, á Móavegi í Grafarvogi, Urðarbrunni í Úlfarsárdal og Asparskógum á Akranesi. Þá eru framkvæmdir við rúmlega 300 nýjar íbúðir komnar vel á veg og rúmlega 500 íbúðir til viðbótar eru í undirbúningsferli.

Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Íbúðir félagsins eru því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn.

Búseti leggur áherslu á að svara þörfum samfélagsins á hverjum tíma. Hjá félaginu er að finna mikla fjölbreytni í íbúðasamsetningu eftir rúmlega þrjátíu ára starfsemi. Innan samstæðu Búseta eru reknar í dag yfir 1.000 íbúðir og eru nú um 180 íbúðir í byggingu á vegum félagsins.

Nánari upplýsingar um starfsemi Bjargs má finna á vef félagsins. Þar er einnig hægt að sækja um íbúðir hjá félaginu.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?