Ný skýrsla Vörðu sýnir að breið gjá einkennir stöðu launafólks í landinu eftir heimilistekjum

Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdarstjóri Vörðu kynnir niðurstöður könnunarinnar

Sjö af hverjum tíu ná endum saman og sex af hverjum tíu gæti mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Hinn hluti launafólks býr hins vegar við allt önnur kjör og er afkoma lágtekjufólks almennt mjög erfið og umtalsverður fjöldi á vinnumarkaði býr við raunverulegan skort.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins á stöðu launafólks á Íslandi sem kynnt var í dag.

 

Meirihluti launafólks á eignir og býr í eigin húsnæði en nokkuð stór hópur er skuldsettur

Ríflega sex af hverjum tíu búa í eigin húsnæði auk þess sem rúmlega helmingur á sparnað sem nemur að minnsta kosti einum mánaðarlaunum.

Umtalsverður hluti launafólks er með skammtímaskuldir en ríflega fjórðungur er með yfirdrátt og bílalán. Meira en einn af hverjum tíu er með smálán eða skammtímalán og lán hjá vini eða fjölskyldumeðlim.

 

Innflytjendur standa höllum fæti hvað afkomu varðar

Atvinnuþátttaka innflytjenda er meiri en innfæddra og hærra hlutfall þeirra eru með háskólamenntun samanborið við innfædda. Þrátt fyrir það eru atvinnutekjur þeirra lægri og fjárhagsstaða verri.

 

Fólk á lágtekju heimilum býr í mun meira mæli við slæma andlega líðan

Mikill munur er á andlegri líðan eftir heimilistekjum en fjórir af hverjum tíu á heimilum með 499 þúsund eða lægri heimilistekjur búa við slæma andlega heilsu og hlutfallið er ögn lægra á heimilum þar sem tekjur eru á bilinu 500-749 þúsund. Til samanburðar eru 13% þeirra sem eru á heimilum með 2 milljónir eða meira í tekjur sem mælast með slæma andlega heilsu.

 

Hærra hlutfall fólks með lágar heimilistekjur býr við slæma líkamlega heilsu

Nákvæmlega sama mynstur sést þegar litið er til líkamlegrar heilsu en tæplega fjórðungur þeirra sem eru með heimilistekjur undir 499 þúsund krónum meta líkamlega heilsu mjög eða frekar slæma samanborið við 10% þeirra sem eru með 2 milljónir eða hærri heimilistekjur.

 

Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar.

Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttafélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust.

 

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér