Ekki bara launafólks að tryggja stöðugleika

Formaður BSRB segir í samtali við Fréttastofu Rúv að almennt launafólk geti ekki eitt borið ábyrgð á stöðugleika og lágri verðbólgu. Samfélagið allt hagnist á því að viðhalda stöðugleika og því verði allir jafnframt að leggja sitt af mörkum til að tryggja að svo verði áfram.

„Það er hagur alls samfélagsins að hér sé lág verðbólga - ekki bara almenns launafólks. BSRB og ASÍ gerðu síðast hóflega kjarasamninga til að auka hér stöðugleika. Það tókst en það voru ekkert alllir sem tóku þátt í þeirri vinnu og sá leikur verður ekki leikin aftur,“ sagði Elín Björg Jónsdóttir í samtali við Rúv um helgina. Sjá má viðtalið í heild sinni hér.





Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?