„Ekki hægt að jóga sig frá kulnun“ – Málþing um kulnun á vinnumarkaði

Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur NLFÍ, á málþingi Heilbrigðis- og velferðarnefndar Sameykis

Heilbrigðis- og velferðarnefnd Sameykis stóð fyrir málþingi í gær þar sem umræðuefnið var kulnun á vinnumarkaði. Málþingið var vel sótt og rúmlega hundrað félagar í Sameyki lögðu leið sína í félagamiðstöðina á Grettisgötu 89 til að hlýða á málþingið.

Ragnhildur Þórðardóttir, sálfæðingur og þjálfari fjallaði um líkamlegan þátt streitunnar, hvernig hún á sér stað í skrokknum og áhrif hennar. Við langvarandi streitu fari fólk að glíma við svefnvandamál, exem og ofnæmi, kynhvöt minnki og sveiflur komi fram í þyngdaraukningu. Hún lýsti því að þegar kulnun er komið á alvarlegt stig koma fram viðverandi svefntruflarnir, ofurviðkvæmni og grátur og minnstu verkefni verða óyfirstíganleg. Sem algenga streituvalda nefndi Ragnhildur álag í vinnu, neikvætt sjálfstal, kvíða og sjálfsefa, erfiðan yfirmann, fjármálaáhyggjur, félagslega einangrun o.fl. Hjálpleg bjargráð við þessu eru t.d. samtalsmeðferðir, að efla félagsleg tengsl, stunda reglubunda hreyfingu og passa upp á að segja nei við verkefnum þegar þess er þörf.

Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur NLFÍ, fjallaði um mataræði sem meðferð við kulnun. En hann segir algengt að fólk í kulnun reyni að hugga sig of mikið með kósíheitum og ofgnótt matar. Það valdi streitu og streita kalli á meira kósí og meiri óhollan mat. Fólk þurfi að borða heilnæmari fæðu, meira af ávöxtum, grænmeti og grófkorni.

Líney Árnadóttir, sérfræðingur á forvarnarsviði hjá Virk starfsendurhæfingu, sagði að hugtakið kulnun ætti ekki að nota í öðrum tilfellum en sem tengdust vinnumarkaðnum því kulnun væri tengd vinnuálagi. „Þættir eins og sjálfræði í starfi skiptir miklu máli, hvernig verkin eru unnin og hvernig skipulagið er á vinnustaðnum. Fólk þarf virkilega á félagslegum stuðningi á að halda í vinnunni og það er það sem drífur einstaklinginn áfram. Þannig finnur fólk tilgang. Ef þetta er ekki í lagi á vinnustaðnum hefur það áhrif til þróunar á kulnun. Ef eitrað andrúmsloft er í samskiptum á vinnustaðnum skiptir það mestu máli um hvort kulnun eigi sér stað samkvæmt rannsóknum á vinnumarkaðnum. Eitruð vinnumenning, svona innan gæsalappa, því ég vil ekki vera of harðorð, er undirrót kulnunar á vinnustað.“ Þá benti Líney á að ekki er hægt að jóga sig frá kulnun ef vandinn liggur hjá vinnustaðnum og í því sambandi væri áhrifaríkast að breyta vinnustaðnum.

Lesa má ítarlega frétt frá málþinginu og horfa á upptöku á heimasíðu Sameykis.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?