Eldvarnarátak LSS farið af stað

Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) í aðdraganda hátíðanna hófst á föstudaginn í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ. Þar fræddu starfsmenn Brunavarna Suðurnesja börn um eldvarnir.

Í kjölfarið fá allir grunnskólar í landinu heimsókn frá slökkviliðinu í sinni heimabyggð. Slökkviálfarnir Logi og Glóð aðstoða við fræðsluna og fá öll börn í 3. bekk söguna af hetjulegri baráttu þeirra systkina við Brennu-Varg að gjöf. Í sögunni er eldvarnagetraun og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þá sem senda LSS réttar lausnir. Krakkarnir fá einnig handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimila með sér heim.

Slökkviliðsmenn um allt land vilja með þessu átaki  hvetja almenning til að efla eldvarnir á heimilum en kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Ungt fólk og leigjendur eru þar í mestri hættu samkvæmt könnunum sem Capacent Gallup hefur gert fyrir LSS og Eldvarnabandalagið.

Allt of mörg heimili hafa engan eða of fáa reykskynjara. Þau fengju því litla eða enga viðvörun ef eldur yrði laus að næturlagi. Innan við helmingur heimila er með eldvarnabúnað sem slökkviliðsmenn telja lágmarksbúnað, það er reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Nú fer í hönd tími þegar eldhætta eykst á heimilum. Slökkviliðsmenn hvetja fólk því til að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana.

Lágmarkseldvarnir á heimilum eru:
- Reykskynjarar, tveir eða fleiri.
- Slökkvitæki við helstu flóttaleið.
- Eldvarnateppi á sýnilegum stað nálægt eldavél.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?