Engin rök fyrir einkavæðingu Íslandspósts

Póstþjónusta á að vera órjúfanlegur hluti af almannaþjónustunni að mati BSRB.

Engin rök eru fyrir einkavæðingu á póstþjónustu enda á hún að vera órjúfanlegur hluti af almannaþjónustunni að mati BSRB. Bandalagið mótmælir harðlega hugmyndum fjármála- og efnahagsráðherra um að einkavæða Íslandspóst ohf. í bréfi sem framkvæmdastjóri bandalagsins hefur sent ráðherra.

Bréfið er sent í kjölfar ummæla Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra um að fljótlega kunni að vera tímabært að einkavæða Íslandspóst ohf.

Í bréfi BSRB segir Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri bandalagsins, ljóst að einkavæðing þess muni hafa í för með verri þjónustu og aukin kostnað fyrir almenning auk þess að hafa slæm áhrif á réttindi starfsmanna.

„Póstþjónusta er samfélagsþjónusta rétt eins og heilbrigðisþjónustan, löggæsla, samgöngur og fleira. Þar þarf fyrst og fremst að horfa til þess að almenningi um allt land sé tryggð góð þjónusta. Slíkt er ekki hægt nema almannaþjónustan sé í höndum hins opinbera sem skipuleggi, stýri og fjármagni hana með jafnan rétt almennings að leiðarljósi,“ segir meðal annars í bréfi BSRB.

Þar er einnig rakið hvernig einkavæðing póstþjónustu í Evrópu hefur ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt með bættri þjónustu og minni kostnaði. Þvert á móti hafi einkavæðingin víða haft í för með sér verri þjónustu, sér í lagi í dreifbýli, hækkandi gjaldskrár og slæm áhrif á vinnuskilyrði og réttindi starfsfólks.

BSRB hvetur til þess að stjórnvöld hætti við öll áform um frekari einkavæðingu samfélagslegra mikilvægra innviða í bréfinu, sem sent var fjármálaráðherra í dag.

Hægt er að lesa bréf BSRB til ráðherra hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?