Launatöflur hjá ríkinu hækka um 0,75% í september

Laun hjá þeim sem starfa hjá ríkinu og eru í aðildarfélögum BSRB hækka um 0,75% frá og með september 2025. Hækkunin kemur til útgreiðslu í október.

Þessi hækkun byggir á svokölluðum launatöfluauka, sem er viðauki í kjarasamningum aðildarfélaga BSRB við opinbera launagreiðendur. Tilgangur hans er að tryggja að laun opinberra starfsmanna fylgi þróun launa á almennum vinnumarkaði.

Niðurstöður úr útreikningum fyrir launaþróun árið 2024 sýna að laun hjá ríkinu þurfa að hækka um 0,75% til að halda í við launaþróun annars staðar. Sambærilegur samanburður verður gerður árin 2026 og 2027.

Hækkunin nær eingöngu til þeirra sem þegar höfðu fengið greidd laun samkvæmt nýjum kjarasamningi í desember 2024.

Launafólk í aðildarfélögum BSRB hjá sveitarfélögunum fær ekki launatöfluauka að þessu sinni, þar sem launaþróun þeirra hefur verið betri en hjá viðmiðunarhópnum á almennum markaði.