Fundur norrænna heildarsamtaka opinberra starfsmanna

Una Margrét Lyngdal Reynisdóttir hagfræðingur

Norræn heildarsamtök opinberra starfsmanna funduðu í BSRB húsinu, Grettisgötu 89 í dag. Fundinn sækir forystufólk í systursamtökum BSRB á Norðurlöndunum en hópurinn fundar að jafnaði árlega. Umræðuefnið í dag var jafnrétti, frá rætt frá ýmsum sjónarhornum og staða opinbera vinnumarkaðarins og starfsfólks á Norðurlöndunum.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB sagði frá Kvennaárinu 2025 í fyrstu framsögu dagsins. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Kvennaathvarfsins og Dagný Aradóttir Pind lögfræðingur á BSRB ræddu ofbeldi í nánum samböndum og hlutverk vinnumarkaðarins þegar kemur að slíkum málum. Una Margrét Lyngdal Reynisdóttir hagfræðingur fjallaði um rannsókn sína á áhrifum barneigna á tekjur foreldra, en þar kemur fram að barneignir hafa afar ólík efnahagsleg áhrif á konur og karla. „Ég er ekki opinber persóna, ég er opinber starfsmaður“ var titill erindis Jóns Gunnars Ólafssonar lektors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, en hann fjallaði um landslag fjölmiðla og samfélagsmiðla bæði á Íslandi og Norðurlöndunum og tengdi það við niðurstöður rannsóknar Þóru Bjarnadóttur um áreiti sem opinbert starfsfólk verður fyrir í íslensku fjölmiðla- og samfélagsmiðlaumhverfi.