Enn hægt að sækja um hjá Genfarskólanum

Norræni lýðháskólinn í Genf, Genfarskólinn, byrjar þann 30. mars og enn er ekki of seint fyrir þá sem hafa áhuga á verkalýðshreyfingunni að sækja um. Umsóknarfrestur er til 31. janúar næstkomandi.

Skólinn er ætlaður virkum félagsmönnum í stéttarfélögum og er gert ráð fyrir því að umsækjendur hafi áhuga á alþjóðamálum verkalýðshreyfingarinnar. Þá er æskilegt að umsækjendur hafi sótt fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar hér á landi og þekki til starfsemi íslenskra stéttarfélaga. Aðild að Genfarskólanum eiga MFA-samböndin í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og hér á landi.

Skólinn er haldinn samhliða Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf og dregur nafn sitt af því. Nemendur kynnast þinghaldinu og Alþjóðavinnumálastofnuninni ILO. Stofnunin starfar að vinnumálum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúar á ILO-þinginu eru frá stjórnvöldum, atvinnurekendum og samtökum launafólks um allan heim. Þátttakendur kynnast norrænu samstarfi á vettvangi ILO og geta kynnt sér ýmis alþjóðasamtök verkalýðshreyfingarinnar sem starfa í tengslum við ILO.

Norræni Lýðháskólinn í Genf, Genfarskólinn, byrjar 30. mars í Runö í Svíþjóð. Að því loknu tekur við fjarnám sem stendur þar til þátttakendur fara út í lok maí.

  • Fornámskeið 30. mars – 2. apríl í Svíþjóð
  • Fjarnám er í apríl og maí
  • Aðalnámskeið 1. júní - 19. júní í Genf

Námið fer fram í formi fjarnáms, fyrirlestra, hópastarfs og þátttakendur fylgjast með fundum Alþjóðavinnumálaþingsins og nefndarstarfi þess. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á einu norðurlandamáli og hafi auk þess góða enskukunnáttu.

Íslensku þátttakendurnir á Genfarskólanum hafa verið tveir undanfarin ár. Þeir hafa sótt fundi hér á landi, sem haldnir hafa verið til undirbúnings þátttöku í skólanum. Kynningarfundir verða haldnir í byrjun febrúar. Á kynningarfundinum munu þátttakendur hitta fulltrúa Íslands sem sækja ILO þingið, ásamt þátttakendum síðasta árs.

Sótt er um í gegnum heimasíðu Genfarskólans. Þar má einnig finna allar nánari upplýsingar um námið.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?