Félagar í F.O.S.Vest samþykkja sameiningu við Kjöl

Fráfarandi stjórn F.O.S.Vest þau Ragnheiður Ása, Þórður, Sigurður, Anna Guðrún, Hálfdán fundarstjóri, Matthildur, Gunnfríður og Þórunn Sunneva. Á myndina vantar Jóhann.

Félagsmenn í Félagi opinberra starfsmanna á Vestfjörðum (F.O.S.Vest) samþykktu sameiningu við Kjöl stéttafélag starfsmanna í almannaþágu einróma á aðalfundi félagsins á laugardag. Sameiningin hefur þegar tekið gildi en bókhaldsleg sameining verður um áramót.

Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu er eitt af stærstu aðildarfélögum BSRB. Félagið er deildaskipt og í kjölfar sameiningarinnar verður stofnuð F.O.S.Vest - deild innan Kjalar. Aðrar deildir félagsins eru: Akureyri, Borgarbyggð, Dala – og Snæfellssýslu, Dalvíkurbyggð, Fjarðabyggð, Húnavatnssýslum, Siglufirði, og Sveitarfélaginu Skagafirði. Við sameininguna þá tekur Sigurður Arnórsson, fráfarandi formaður F.O.S. Vest, sæti í stjórn Kjalar en F.O.S.Vest-deild er tryggt sæti á lista til stjórnar Kjalar stéttarfélags samkvæmt lögum félagsins.

Félagsaldur félagsmanna F.O.S.Vest flyst að fullu til sjóða Kjalar stéttarfélags, orlofssjóðs og starfsmenntasjóðs. Til næstu áramóta verður afgreiðsla styrkja starfsmenntasjóðs og afgreiðsla orlofshúsa F.O.S.Vest með óbreyttu sniði.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?