BSRB gagnrýnir harðlega þá aðhaldsstefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Bandalagið mótmælir sérstaklega illa rökstuddum áformum um fækkun ríkisstarfsmanna, niðurskurði í almannaþjónustu og skerðingu á stuðningi við heimilin. Í umsögn BSRB er kallað eftir stefnubreytingu þar sem uppbygging öflugrar almannaþjónustu og velferðarkerfis verði sett í forgang.
BSRB tekur undir mikilvægi sjálfbærra ríkisfjármála en hafnar því að leiðin að því markmiði felist í áframhaldandi niðurskurði. Margir útgjaldaliðir ríkissjóðs hafa sætt aðhaldi um árabil og frekari niðurskurður ógnar getu opinberra stofnana til að veita þá þjónustu sem samfélagið þarf á að halda.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eiga útgjöld ríkissjóðs að nema 30,5% af vergri landsframleiðslu árið 2027 og lækka svo áfram í29,5% árið 2031. Það væri sögulega lágt hlutfall og verulega undir meðaltali síðustu áratuga.Sl. 30 ár hafa útgjöld ríkisins numið að meðaltali 33,2% af VLF og þá eru frá talin allmörg útgjaldaþung ár vegna efnahagshruns, heimsfaraldurs og jarðhræringa.
BSRB telur þessa stefnu fela í sér grundvallarbreytingu á samfélagssýn þar sem dregið er úr samtryggingu og velferð.
Fækkun ríkisstarfsmanna er röng forgangsröðun
BSRB mótmælir sérstaklega markmiði ríkisstjórnarinnar um að fækka ríkisstarfsmönnum um 1% á næsta ári. Bandalagið telur óeðlilegt að setja fram slíkt markmið án þess að skilgreina fyrst hvaða þjónustu ríkið eigi að veita og hvaða mannafla þurfi til að sinna henni.
Í umsögninni er bent á að stöðugildum hjá ríkinu utan grunnþjónustu hafi aðeins fjölgað um 2% á árunum 2019–2025 á sama tíma og íbúum landsins fjölgaði um tæplega 13%.Mest er fjölgunin í heilbrigðisþjónustu sem skýrist meðal annars af fólksfjölgun og öldrun þjóðarinnar, sem kallar á aukna þjónustu.
BSRB leggur áherslu á að fjöldi starfsfólks eigi að ráðast af verkefnum og þjónustuþörf en ekki fyrirfram ákveðnum niðurskurðarmarkmiðum. Slíkt skapi hættu á að álag á starfsfólk aukist og þjónusta við almenning skerðist.
Mótmælir skerðingu á stuðningi við heimilin
BSRB gerir jafnframt alvarlegar athugasemdir við áform sem snúa að afkomu barnafjölskyldna og tekjulágra heimila í gegnum tilfærslukerfin. Það að halda fjárheimildum til barnabóta óbreyttum leiðir til þess að bæturnar rýrna að raunvirði. Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi þurfa að hækka í takt við launaþróun og áform um afnám vaxtabóta munu bitna sérstaklega á tekjulágum húsnæðiseigendum. Í jafnréttismati frumvarpsins kemur jafnframt fram að afnámið muni hafa meiri áhrif á konur en karla.
Þörf á stórsókn í húsnæðismálum – ekki niðurskurði
BSRB mótmælir harðlega fyrirhugaðri þriggja milljarða króna lækkun stofnframlaga til uppbyggingar almennra íbúða árið 2027. Þörfin á húsnæði fyrir lágtekjufólk er gríðarleg og um 4.000 manns eru á biðlista eftir íbúð hjá Bjargi íbúðafélagi.Bandalagið telur brýnt að stjórnvöld auki framlög til uppbyggingar almennra íbúða í stað þess að draga úr þeim. Jafnframt þurfi ríkið að taka þátt í því með verkalýðshreyfingunni að tryggja að sveitarfélög uppfylli lagaskyldur sínar í húsnæðismálum.
Gjaldahækkanir bitna misjafnlega á fólki
Í umsögninni er einnig varað við áhrifum fyrirhugaðra gjaldahækkana á verðbólgu og verðbólguvæntingar. Sérstaklega er bent á hækkun kílómetragjalds, sem lagt er til í frumvarpinu að hækki meira en önnur krónutölugjöld. Það getur komið þungt niður á tekjulægri hópum og fólki á landsbyggðinni þar sem almenningssamgöngur eru víða takmarkaðar.
Fjárfestum í velferð í stað þess að skera niður
BSRB leggur áherslu á að öflug almannaþjónusta sé fjárfesting í fólki og samfélaginu öllu. Vaxandi og breytt þjónustuþörf kalli á uppbyggingu innviða, nægilega mönnun og styrkingu velferðarkerfisins. Í stað þess að draga úr opinberri þjónustu og skerða stuðning við heimilin þurfi stjórnvöld að afla tekna til að tryggja sjálfbær ríkisfjármál.
BSRB mótmælir því að skuldir ríkissjóðs verði greiddar með aðhaldi í almannaþjónustu og skerðingu á réttindum og stuðningi við almenning.