Formannaráð BSRB kom saman í Reykholti í Borgarfirði dagana 28. og 29. október. Staða opinberrar þjónustu, áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn og leiðir til að efla stéttarfélögin voru meðal helstu umræðuefna fundarins.
Velferðarsamfélag eða Ísland ehf.?
Staða opinberrar þjónustu í íslensku samfélagi var fyrirferðarmikil í umræðum á fundinum. Í erindi sínu, Velferðarsamfélag eða Ísland ehf.? fjallaði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um hvernig kerfisbundið væri grafið undan trausti á opinberri þjónustu og starfsfólki hennar til að réttlæta niðurskurð, útvistun og einkavæðingu.
Sonja gagnrýndi þá hugmyndafræði að reka ætti opinbera þjónustu eins og hvert annað fyrirtæki. Ísland er samfélag en ekki fyrirtæki. Hún lagði áherslu á að almannaþjónusta og velferð fólks yrðu að vera í fyrsta sæti. Mikilvægt væri að standa vörð um opinbera þjónustu, berjast gegn útvistun og einkavæðingu og standa með starfsfólki sem sinnir mikilvægum samfélagslegum verkefnum. Aðför að opinberri þjónustu væri jafnframt aðför að lýðræðinu.
Launafólk verði haft með í ráðum við innleiðingu gervigreindar
Áhrif gervigreindar á störf og réttindi launafólks voru einnig til umræðu. Fríða Rós Valdimarsdóttir, sérfræðingur í fræðslumálum hjá BSRB, fjallaði um þær áskoranir sem fylgja aukinni notkun gervigreindar á vinnumarkaði.
Hún fór yfir hvernig gervigreind er þegar farin að hafa áhrif á störf og kynnti niðurstöður kannana Vörðu um viðhorf launafólks til gervigreindar, meðal annars með tilliti til starfsöryggis og vinnuaðstæðna.
Fríða Rós sagði jafnframt frá samkomulagi aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda í Noregi um innleiðingu og notkun gervigreindar á norskum vinnumarkaði. Hún lagði áherslu á að launafólk yrði að hafa raunverulega aðkomu að ákvörðunum um innleiðingu og notkun gervigreindar á vinnustöðum.
Vinnuheilsa og efling stéttarfélaganna
Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, hélt erindi um vinnuheilsu þar sem hún sagði frá rannsóknum sem gerðar hafa verið bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Vinnuheilsa er „heilsufar sem má að öllu leyti eða að hluta rekja til starfsins sem viðkomandi sinnir og áhrifa vinnumhverfisins“ og sýna rannsóknir að staða vinnuheilsu sé sérstaklega slæm í svokölluðum kvennastéttum, sem að stórum hluta starfa hjá hinu opinbera. Dagný fjallaði meðal annars um rannsókn Félagsvísindastofnunar frá 2025 á stöðu kvenna með örorkulífeyri. Þar kemur fram að konur á örorkulífeyri hafi frekar en aðrar konur á sama aldri unnið við líkamlega og andlega krefjandi aðstæður og búið við fjárhagslegt og félagslegt óöryggi.
BSRB leggur áherslu á að efla umræðu um vinnuheilsu og tengsl hennar við starfsumhverfi og velferð launafólks. Vinnuheilsa
Stefán Sveinjörnsson, framkvæmdastjóri VR, kynnti að lokum starfsemi VR og ræddi þær áskoranir sem verkalýðshreyfingin stendur frammi fyrir. Í kjölfarið unnu formenn í hópum þar sem rætt var hvernig efla mætti stéttarfélögin og styrkja starf þeirra til framtíðar.
Líflegar umræður sköpuðust á fundinum og þátttakendur skiptust á reynslu og hugmyndum um þau fjölbreyttu verkefni sem stéttarfélögin og verkalýðshreyfingin standa frammi fyrir.
Formannaráð BSRB er skipað formönnum aðildarfélaga bandalagsins hverju sinni. Ráðið mótar stefnu og megináherslur BSRB í málum sem upp koma milli þinga bandalagsins. Formaður BSRB er jafnframt formaður ráðsins.