Formannaráð BSRB krefst þess að fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, dragi til baka frumvarp um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna

Formannaráð BSRB krefst þess að fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, dragi til baka frumvarp um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og einbeiti sér að raunverulegum lausnum: að bæta starfsaðstæður og tryggja að ríkið laði að og haldi í starfsfólk.

Afnám áminningarskyldu væri ein stærsta réttindaskerðing á íslenskum vinnumarkaði í áratugi. Það skerðir starfsöryggi ríkisstarfsmanna verulega – líklegt er að sveitarfélögin fylgi í kjölfarið.

Áminningarskylda hindrar ekki uppsagnir. Hún tryggir að þær séu málefnalegar. Hún er lágmarksvernd gegn geðþótta, óréttlæti og misbeitingu valds – og sambærileg vernd er viðtekin á bæði almennum og opinberum vinnumarkaði í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Með þessu er verið að ráðast að réttindum starfsfólks sem ber uppi opinbera þjónustu við krefjandi og víða erfiðar aðstæður.

Formannaráð BSRB mótmælir þessari aðför að launafólki harðlega.
Réttindi á að bæta – ekki skerða!