Formannsskipti hjá Kili stéttarfélagi

Arna Jakobína og Hulda Guðmundsdóttir

Hulda Guðmundsdóttir er nýr formaður Kjalar stéttarfélags en hún var kjörinn formaður á aðalfundi félagsins sem fram fór 26. mars sl. í Hofi á Akureyri. Hulda tekur við af Örnu Jakobínu Björnsdóttur,  hefur gengt formennsku Kjalar stéttarfélags í 34 ár.

Hulda var eini frambjóðandinn til formennsku. Hún er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið á Akureyri í 38 ár. Hulda hefur starfað sem verkefnastjóri á skrifstofu Kjalar á Akureyri frá því í október á síðasta ári og verið varamaður í stjórn félagsins frá 2023.

Fráfarandi formaður Kjalar, Arna Jakobína Björnsdóttir er jafnframt 2. varaformaður BSRB.  BSRB mun áfram njóta krafta hennar þar sem hún  mun sitja í stjórn bandalagsins fram að þingi þess haustið 2027.