Fram­færslu­kröfur úr takti við veru­leika lág­launafólks

Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ og Jana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur hjá BSRB

Dómsmálaráðherra birti í gærmorgun grein á Vísi, „Framfærslukröfur í takt við raunveruleikann“, og færir þar rök fyrir drögum að reglugerð um framfærsluskilyrði vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt. Drögin hafa sætt harðri gagnrýni í samráðsgátt stjórnvalda. ASÍ og BSRB hafa gert alvarlegar athugasemdir við drögin og kallað eftir endurskoðun þeirra. Áhyggjur okkar snúa að því að fólk sem hér vinnur og hefur byggt upp líf geti vegna nýrra framfærslukrafa misst möguleikann á áframhaldandi dvöl eða ríkisborgararétti.

Ráðherra vísar til þess að dýrt sé að búa á Íslandi til að réttlæta stórhækkaðar framfærslukröfur, sem hún segir í takt við raunveruleikann. Raunveruleikinn er hins vegar sá að hér á landi vinnur fólk fullan vinnudag á kjarasamningsbundnum launum sem eru undir fyrirhuguðum framfærslukröfum. Ríkið sjálft greiðir laun undir þessum framfærslukröfum en ætlar nú að setja reglur sem gera þau að hindrun fyrir áframhaldandi dvöl fólks sem hér býr.

Nýja framfærslukrafan er reiknuð sem meðaltal frítekjumarka húsnæðisbóta, örorkulífeyris með heimilisuppbót og skerðingarmarka barnabóta. Þessi viðmið gegna ólíkum hlutverkum í velferðarkerfinu. Líkt og ASÍ og BSRB benda á í umsögnum sínum hefur hvorki verið rökstutt hvers vegna þessi viðmið eru valin né hvers vegna meðaltal þeirra sé heppilegur mælikvarði á trygga framfærslu. Staðhæfing ráðherra um að fjárhæðin sé ekki úr lausu lofti gripin svarar ekki þeirri gagnrýni.

Ráðherra segir markmiðið vera að reglurnar séu sanngjarnar og taki mið af ólíkum aðstæðum fólks. Raunin er sú að kröfurnar leggjast misþungt á fólk eftir fjölskyldustöðu. Framfærslukrafa á mánuði er um 25.000 kr. umfram lágmarkslaun í tilfelli einstaklinga. Ef litið er til fjölskyldna með tvö börn er mánaðarleg framfærslukrafa rúmlega 230.000 kr. hærri en lágmarkslaun og hæstu mögulegu barnabætur hjá einstæðu foreldri, um 110.000 kr. hærri hjá hjónum í sambærilegri stöðu og rúmlega 300.000 kr. hærri hjá sambúðarfólki. Almennar yfirlýsingar ráðherra um sanngirni standast því ekki skoðun. Þá hefur athugasemdum varðandi skilyrðin sem sett eru námsfólki, ungu fólki í foreldrahúsum og sambúðarfólki heldur ekki verið svarað.

Ráðherra segist vilja gefa fólki raunhæfa mynd af því hvað það kostar að búa á Íslandi. Fólk sem þegar býr, vinnur og hefur byggt upp líf hér þekkir þann kostnað vel. Það er á ábyrgð stjórnvalda að skapa efnahagslegar aðstæður þar sem laun fyrir fulla vinnu duga til framfærslu. Það er hins vegar ábyrgðarleysi af stjórnvöldum að leggja fram kröfur á tiltekinn hóp fólks um framfærslu sem eru ekki í neinum takti við raunveruleika láglaunafólks en geta haft þær afdrifaríku afleiðingar að standa í vegi fyrir áframhaldandi dvöl eða ríkisborgararétti.

Uppfærð opinber framfærsluviðmið þarf að móta á faglegum grunni. Ef stjórnvöld telja sig nú hafa skilgreint almenna lágmarksþörf til framfærslu verða þau jafnframt að svara því hvernig það samræmist lægstu launum og bótum. Það gengur ekki að nota slíkt viðmið eingöngu til að herða skilyrði fyrir búsetu og ríkisborgararétti.