Friðarganga á Þorláksmessu

Friðarganga hefur verið fastur liður í Reykjavík frá árinu 1981 á Þorláksmessu. Gengið er frá Hlemmi og fer gangan að þessu sinni af stað á slaginu kl. 18.

Fólk er hvatt til að ganga með kerti í hönd en göngunni er ætlað að leggja áherslu á kröfuna um frið í heiminum. Í göngulok er fundur á Austurvelli þar sem Andri Snær Magnason rithöfundur flytur ávarp. Fundarstjóri verðu Tinna Önnudóttir Þorvalds leikkona.

Hamrahlíðarkórinn og kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngja í göngunni og í lok fundar. Umsjón er að venju í höndum samstarfshóps friðarhreyfinga.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?