Fundur um boðaðar aðgerðir

Þrjú af aðildarfélögum BSRB sem hafa verið í samningaviðræðum við Isavia undanfarnar vikur um gerð nýs kjarasamnings hafa boðað til fundar um mögulegar aðgerðir. Félögin sem um ræðir eru Félag flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR), SFR stéttarfélag í almannaþjónustu og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS).

Félögin vísuðu kjaradeilu sinni við Isavia til ríkissáttasemjara eftir að fullreynt var að ekki næðist saman milli félaganna og Isavia. Undir handleiðslu ríkissáttasemjara hefur verið unnið að samningsgrunni sem félögin töldu að hægt væri að byggja hugsanlegar viðræður og samkomulag á. Fyrr í dag bárust félögunum hins vegar fréttir af því frá viðsemjanda að til þess að vinna frekar á þeim samningsgrunni yrði sett það skilyrði að samningurinn yrði lengdur verulega  eða um 7 mánuði, sem þýddi að samningstíminn væri þá orðinn 19 mánuðir.

Þetta skilyrði er algjörlega óásættanlegt að mati samninganefnda félaganna. Staðan er því sú að kjarasamningsviðræðurnar eru komnar í algjöran hnút og því hafa samninganefndir félaganna lagt  til við stjórnir þeirra að efna til allsherjar atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum hjá Isavia um boðun aðgerða. Sú atkvæðagreiðsla hefst á baráttufundi félaganna þann 27. mars og er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir á hádegi miðvikudaginn 3. apríl.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?